Keflavík.is - Sund - Fyrir foreldra ÍRB
Fyrir foreldra ÍRB

Við þökkum þeim fjölmörgu sem mættu í Vatnaveröld í dag, 16. júní, og gerðu skóla og sundlaug klára. Ekki tók nema klukkustund að tæma stofur og færa borð og stóla yfir.

Næst munum við hittast miðvikudaginn 18. júní kl. 18:00. Þá verður klárað að raða upp stólum í lauginni og stilla upp borðum.

Fimmtudaginn 19. júní kl. 20:00 hittumst við svo í íþróttahúsinu við Sunnubraut og gerum allt klárt fyrir lokahófið.

ÍRB býður stjórnarmeðlimum og foreldrum ÍRB sundmanna miða á AMÍ lokahófið á niðurgreiddu verði, eða 1000 kr. miðann. Við munum reyndar öll sömul vinna á lokahófinu við að uppfarta aðra og taka saman á eftir ... en munum setja upp eitt ÍRB - foreldraborð og við ættum öll að ná að tylla okkur niður og fá okkur í gogginn, milli þess sem við þjónustum aðra. Við vonumst til þess að sem flestum hugnist þetta og mæti á hófið í mat og vinnu. Munið bara að tiltaka, þegar þið kaupið miðana, að þið eruð ÍRB foreldrar.

Allir foreldrar sundmanna frá ÍRB fá gefins boli á mótinu. Þeir verða afhentir í sjoppu í Vatnaveröld.

Þeir foreldrar sem eru að vinna bæði fyrir hádegi og eftir hádegi í sama mótshluta geta fengið að borða hádegismat í boði ÍRB í Holtaskóla.

Sundmenn ÍRB eiga að mæta kl 18.00 í Holtaskóla miðvikudaginn 18. júní. Það sem þarf að hafa með sér er:
Útifatnað fyri skrúðgöngu/marseringu á miðvikudagskvöldið, ÍRB aðalbúning og ÍRB varabúning (hvíta bolinn og kvartbuxurnar). Dýnu og svefnpoka, sundfatnað, sundgleraugu og nóg af handklæðum. Munið að merkja eigur ykkar. Gist verður og borðað í Holtaskóla. Fullt fæði er alla dagana frá og með kvöldverði á miðvikudagskvöldi fram á sunnudagskvöld.