Keflavík.is - Sund - Almennar uppl.
Almennar uppl.
AMÍ 2008 - Almennar upplýsingar

AMÍ 2008 verður haldið í Reykjanesbæ 19. - 22. júní

Keppt verður í Vatnaveröld við Sunnubraut.

Boðið verður upp á gistingu í Holtaskóla. Skólinn er staðsettur andspænis Vatnaveröld. Eins og venja er með sundmót þarf fólk að hafa með sér dýnur og annan viðlegubúnað.
Matur verður framreiddur í Holtaskóla. Lokahófið verður í íþróttahúsinu við Sunnubraut, sem er við hlið Holtaskóla.
AMÍ-pakki, sem inniheldur mat og gistingu frá miðvikudagskvöldi 18. júní (húsið opnað kl. 16:00), til og með mánudagsmorgni 23. júní, lokahóf og AMÍ bol kostar krónur 17.500 krónur. Þess má geta að þetta er sama verð og fyrir AMÍ 2006 að viðbættum tveimur máltíðum fyrir stærra mót og síðan 10% hækkun, sem er talsvert undir vísitöluhækkun á sama tíma.

Félögin panta AMÍ-pakka fyrir sitt fólk með því að senda tölvupóst á Brynju, brynjavigdis@simnet.is og afrit (cc) á gjb@dmm.is í síðasta lagi mánudag 9. júní á miðnætti.  Við getum ekki ábyrgst að verða við skráningum sem berast síðar, né heldur endurgreiðslu á skráningum eftir þennan tíma.

Greiðslur fyrir AMÍ-pakka greiðast inn á reikning ÍRB fyrir mánudaginn 16. júní, reikningsnúmer 1191-05-401721, kt. 5310952519. Vinsamlegast athugið að matar- og gistipassar verða afhentir frá 16:00 - 19:00 í Holtaskóla miðvikudaginn 18. júní og þá aðeins gegn framvísun á staðfestingu á greiðslu (til dæmis útprentun úr heimabanka).

Spurningum varðandi AMÍ-pakkann skal beint til Brynju eða Guðmundar, á ofanskráð netföng, eða í síma 862 1474 (Brynja) eða 864 9102 (Guðmundur).

Skráning sundmanna
Skráningarfrestur til keppni á AMÍ rennur út mánudag 9. júní á miðnætti, skráningar skal senda á Hildi Kareni á sundsamband@sundsamband.is.


Við sjáum fram á skemmtilega mótsdaga hér í Reykjanesbæ í flottum félagsskap sundmanna, þjálfara, fararstjóra, foreldra og annarra velunnara þeirrar frábæru íþróttar sem sundið er.

Með sundkveðjum, f.h. ÍRB.
Guðmundur Jón Bjarnason, formaður Sunddeildar Keflavíkur
Guðný Ester Aðalsteinsdóttir, formaður Sunddeildar Njarðvíkur

-----------------------------------------------