Hagnýtt f. fararstjóra
Hagnýtt fyrir fararstjóra
Eftirfarandi er gott að hafa í huga varðandi gistinguna í Holtaskóla, umgengni o.fl.
Félögunum verður úthlutað stofum og hver er ábyrgur fyrir sinni stofu meðan á móti stendur. Að deginum er húsið opið og stofurnar ólæstar, þannig að ekki er vert að geyma nein verðmæti þar. Ætlast er til að ró verði komin á í húsinu klukkan 22:00 (nema á sunnudagskvöldið). BANNAÐ er að ganga á útiskóm inni.
Mikilvægt er að sundmenn fikti ekki í símum, tölvum eða öðrum búnaði sem kann að vera í stofunum. Berum virðingu fyrir vinnustað kennara og barnanna og göngum vel um. Til að allt gangi að óskum þá er mikilvægt að við sýnum hvort öðru tillitssemi við laugina í gistihúsnæði og í matsal.
Hægt er að ná í starfsmenn á vakt með því að hringja í númer þess sem er á vakt.
Allir sem kaupa pakka fá afhent hálsband með merki mótsins og matarmiðum á, sem ástæða er til að minna keppendur á að passa vel uppá, þá þarf að sýna við hverja máltíð.
Til að forðast sóðaskap í búningsklefunum er mikilvægt að keppendur gangi ekki á sömu skóm á áhorfendapöllunum og inní klefunum=engir útiskór inni.
Aldrei er of brýnt fyrir keppendum að merkja eigur sínar. Það er t.d. erfitt að þekkja ómerkta AMÍ boli í sundur.
Helstu verslanir í Reykjanesbæ eru:
Kaskó Iðavöllum 14B, 230 Keflavík
Samkaup Strax Hringbraut 55, 230 Keflavík
Samkaup Úrval, Krossmóa 4, 260 Njarðvík
10-11 Hafnargötu 51, 230 Keflavík
Lyfjaverslanir í bænum:
Lyf og heilsa, Suðurgötu 1, 230 Keflavík, sími 4213200
Lyfja, Hringbraut 99, 230 Keflavík, sími 4216565
Slysamóttaka á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja er á Skólavegi 6-8, 230 Keflavík, sími 4220500
Þeir sem koma á slysamóttöku eru þeir sem hafa meitt sig á síðasta sólarhring. Fólki með eldri meiðsl er bent á heilsugæsluna. Tekið er á móti slösuðum allan sólarhringinn. Á virkum dögum milli klukkan 8:00 og 16:00 er hjúkrunarfræðingur á staðnum sem sinnir móttöku slasaðra. Eftir klukkan 16:00 og um helgar þarf að láta vita af sér í afgreiðslunni.