Keflavík.is - Sund - AMÍ 2008
AMÍ 2008
AMÍ 2008 - Fréttir

Flott samantekt í máli og myndum frá Víkurfréttum

ÍRB AMÍ meistarar 5. árið í röð:)
Þá er stórgóðu Aldursflokkameistaramóti Íslands í sundi lokið.
Mótið var haldið í Vatnaveröld í Reykjanesbæ og var öll aðstaða og framkvæmd mótsins mótshöldurum í ÍRB til mikils sóma.
Stemming á mótsstað var mjög góð, skemmtilegt mót, spennandi keppni og miklar framfarir meðal keppenda.

ÍRB vann yfirburðasigur í stigakeppni félaga og hlutu 4045,5 stig, Ægir varð í 2. sæti með 3438 stig og SH í 3. sæti með 2192 stig.

Alls voru sett tvö Íslandsmet og níu unglingamet.
Sigrún Brá Sverrisdóttir Fjölni setti Íslandsmet í 400m skriðsundi og synti á 4:17,35 mín. og bætti met sitt frá AMÍ 2007 um 1,28 sek.
Sigrún Brá kórónaði frábæra frammistöðu á mótinu með því að setja Íslandsmet í 200m skriðsundi þegar hún synti á 2:01,55 mín. og bætti eigið met frá því í nóvember 2007 um 3/100 úr sekúndu.
Hrafnhildur Luthersdóttir SH setti tvö glæsileg stúlknamet, þegar hún synti 200m bringusund á 2:31.51 mín. en fyrra met átti Erla Dögg Haraldsóttir, 2:32.90 mín, sem var sett í Vestmannaeyjum 2004. Hrafnhildur synti 100m bringusund á 1:10,51 mín. og bætti eigið met um 38/100 úr sek.
Sindri Þór Jakobsson ÍRB setti piltamet í 100m flugsundi þegar hann synti á 55,79mín. og bætti met Arnar Arnarsonar SH frá því 1998 um 91/100 úr sek.
Boðsundsveitir SH í Hafnarfirði settu 6 unglingamet.
Drengjasveit SH (13-14 ára) tvíbætti drengjametið i 4x50 metra fjórsundi og syntu drengirnir á tímanum 2:03,94mín í undanrásum og bættu það met síðan í úrslitunum seinni partinn og syntu á 2:03,28mín en gamla metið var 2:06,24 sem ÍRB átti frá árinu 2003.
Sveitina skipuðu þeir  Kolbeinn Hrafnkelsson,  Aron Örn Stefánsson, Sigurður Friðrik Kristjánsson og  Njáll Þrastarson.    
Drengjasveit  (13-14ára) SH setti nýtt drengjamet í 4x50 m. skriðsundi þegar þeir syntu á 1:48.49 mín.og bættu met ÍRB frá 2007 um 3,21sekúndu.
Sveitina skipuðu  Njáll Þrastarson, Predrag Milos, Sigurður Friðrik Kristjánsson og Kolbeinn Hrafnkelsson.
Sveit SH tvíbætti stúlknametið (15-17ára) í 4x50m fjórsundi þegar þær syntu á 2:02.47 mín. í undanrásum og bættu met ÍRB (2:04,13mín) frá 2007 um 1,66sek.
Stúlkurnar stórbættu síðan metið í úrslitunum í kvöld, syntu á 2:00,78 mín. og bættu metið um 3,25 sekúndur.
Sömu stúlkur settu  síðasta unglingamet AMÍ mótsins í 4x50m skriðsundi þegar þær syntu á 1:49.25 mín. og bættu met Óðins stúlkna frá því í nóvember 2007 um 2,27 sekúndur.
Það voru þær Hrafnhildur Luthersdóttir, Berglind Friðriksdóttir, Hildur Erla Gísladóttir, Snjólaug Tinna Hansdóttir sem skipuðu þessa vösku sveit Hafnfirðinga.

Afreksverðlaun einstaklinga á AMÍ 2008
Stigahæstu sundmenn mótsins samkvæmt stigatöflu FINA

17 -18 ára   Tvær stigahæstu greinar 15 -16 ára   Tvær stigahæstu greinar
Sigrún Brá Sverrisdóttir Fjölni    1671 stig Gunnar Örn Arnarson ÍRB    1373 stig
Sindri Már Jakobsson ÍRB    1487 stig Inga Elín Cryer ÍA 1449 stig
13 -14 ára   Þrjár stigahæstu greinar 12 ára og yngri 
Eygló Ósk Gústafsdóttir Ægi    2044 stig Jóhanna Júlíusdóttir  ÍRB   1626 stig 
Njáll Þrastarson SH    1620 stig Kristinn Þórarinsson Fjölni    1074 stig
AMÍ 2008 - Stigakeppni liða - Lokastaðan

Sæti Lið Stig
1 ÍRB 4045,5
2 Ægir 3438
3 SH 2192
4 Óðinn 2000
5 KR 1826
6 ÍA 1231
7 Fjölnir 995
8 Breiðablik 435
9 Vestri 391
10 Ármann 224
11 Afturelding 182,5
12 Selfoss 74
13 UMSB 64
14 UMFG 59
15 Stjarnan 12


Síðasta met AMÍ 2008
Stúlknasveit SH setti síðasta unglingamet AMÍ mótsins í 4x50m skriðsundi þegar þær syntu á 1:49.25 mín. og bættu met Óðins stúlkna frá því í nóvember 2007 um 2,27 sekúndur.
Sveitina skipuðu þær  Hrafnhildur Luthersdóttir, Berglind Friðriksdóttir, Hildur Erla Gísladóttir, Snjólaug Tinna Hansdóttir.

Enn eitt metið á AMÍ
Sigrún Brá Sverrisdóttir Fjölni var rétt í þessu að setja Íslandsmet á AMÍ í 200m skriðsundi þegar hún synti á 2:01,55 mín. og bætti eigið met frá því í nóvember 2007 um 3/100 úr sekúndu. Nú eru einungis nokkur sund eftir þennan klukkutíma sem eftir er af AMÍ í Reykjanesbæ. Í kvöld tekur svo við skemmtilegt lokahóf þar sem um 400 gestir verða í Íþróttahúsinu við Sunnubraut.

Þriðja degi AMÍ lokið - stigastaða
Samantekt að loknum laugardegi á AMÍ 2008
 
 ÍRB heldur enn öruggri forystu og virðist fátt geta komið í veg fyrir 5. Aldursflokkameistaratitilinn í röð.

Þrjú glæsileg unglingamet í dag:)
 
Sindri Þór Jakobsson ÍRB setti piltamet í 100m flugsundi þegar hann synti á 55,79mín. og bætti met Arnar Arnarsonar SH frá því 1998 um 91/100 úr sek.
 
Hrafnhildur Luthersdóttir SH setti rétt í þessu stúlknamet, þegar hún synti 200m bringusund á 2:31.51 mín. en fyrra met átti Erla Dögg Haraldsóttir, 2:32.90 mín, sem var sett í Vestmannaeyjum 2004.

Drengjasveit  (13-14ára) SH setti nýtt drengjamet í 4x50 m. skriðsundi þegar þeir syntu á 1:48.49 mín.og bættu met ÍRB frá 2007 um 3,21sekúndu.

Sveitina skipa  Njáll Þrastarson, Predrag Milos, Sigurður Friðrik Kristjánsson og Kolbeinn Hrafnkelsson.

Þegar þriðja degi AMÍ lauk var Metamót í Vatnaveröld. Þar reyndi Erla Dögg Haraldsdóttir við Íslandsmet í 100 bringusundi í 25m laug. Tilraunin tókst og setti Erla Dögg nýtt met á tímanum 1:08,58. Glæsilegt!! Hér má sjá myndband af Íslandsmetinu. Myndbandið er af vef Víkurfrétta!

Sæti Lið Stig
1 ÍRB 3014
2 Ægir 2649,5
3 SH 1576
4 Óðinn 1483
5 KR 1398
6 ÍA 890
7 Fjölnir 770
8 Breiðablik 311
9 Vestri 276
10 Ármann 193
11 Afturelding 125,5
12 UMFG 52
13 UMSB 46
14 Selfoss 34
15 Stjarna 12

Laugardagur - Stúlknamet og drengjamet

Eitt unglingamet var sett í undanrásum  Aldursflokkameistaramót Íslands í  morgun.

Drengjasveit  (13-14ára) SH setti nýtt drengjamet í 4x50 m. skriðsundi þegar þeir syntu á 1:48.49 mín.og bættu met ÍRB frá 2007 um 3,21sekúndu.
Sveitina skipa  Njáll Þrastarson, Predrag Milos, Sigurður Friðrik Kristjánsson og Kolbeinn Hrafnkelsson.
 
Hrafnhildur Luthersdóttir setti rétt í þessu stúlknamet, þegar hún synti 200 m bringusund á 2:31.51 mín. en fyrra met átti Erla Dögg Haraldsóttir, 2:32.90 mín, sem var sett í Vestmannaeyjum 2004.
 

Föstudagur - Eitt Íslandsmet, þrjú unglingamet og örugg forysta ÍRB í stigakeppni

Sigrún Brá Sverrisdóttir Fjölni var rétt í þessu að setja glæsilegt Íslandsmet í 400m skriðsundi á Aldursflokkameistaramóti Íslands í Reykjanesbæ.
Sigrún synti á 4:17,35 mín. og bætti met sitt frá AMÍ 2007 um 1,28 sek. Myndin hér að neðan var tekin eftir sundið, Sigrún Brá er í miðju, vinstra megin við hana er Olga Sigurðardóttur í Ægi, sem varð önnur og Hildur Erla Gísladóttir SH, sem varð þriðja.

 


Hrafnhildur Lúthersdóttir bætti eigið stúlknamet í 100m bringusundi þegar hún synti á 1:10,51 mín. og bætti eigið met um 38/100 úr sek.
 
Sveit SH tvíbætti stúlknametið (15-17ára) í 4x50m fjórsundi þegar þær syntu á 2:02.47 mín. í undanrásum og bættu met ÍRB (2:04,13mín) frá 2007 um 1,66sek.

Stúlkurnar stórbættu síðan metið í úrslitunum í kvöld, syntu á 2:00,78 mín. og hafa bætt metið um 3,25 sekúndur í dag.

Sveitina skipa þær Berglind Friðriksdóttir, Hrafnhildur Luthersdóttir, Snjólaug Tinna Hansdóttir og Hildur Erla Gísladóttir.

ÍRB stefnir óðfluga að 5 titlinum í röð sem stigahæsta félag AMÍ og virðast Ægiringar ekki ná að fylgja Reyknesingum eftir.

Stemmingin á mótsstað er mjög góð í glæsilegri sundlaug Reykjanesbæjar, árangur sundfólks almennt er góður og athyglisverðar framfarir í mörgum greinum.
Einna mesta eftirtekt vekur árangur Sindra Jakobssonar ÍRB sem synt hefur framúrskarandi 400m og 1500m skriðsund en Sindri hefur tryggt sér keppnisrétt á Evrópumeistaramóti Unglinga sem haldið verður í Zagreb í byrjun ágúst.