Spjall
Kæru spjallverjar. Vinsamlegast verið kurteisir og tillitssamir þegar þið skrifið á spjallsíðuna okkar. Hún á ekki að vera vettvangur níðskrifa og rifrilda, þó heilbrigður metingur sé vel þeginn. Öllum er heimilt að rita undir dulnefni, en mönnum er hins vegar óheimilt að gera neikvæðar athugasemdir um nafngreinda menn nema undir réttnefni. Ef menn þykjast vera aðrir en þeir eru eiga þeir á hættu að verða lögsóttir. Reynum að nota spjallið fyrir heilbrigðar og jákvæðar umræður. Vefstjórar áskilja sér rétt til að eyða þeim skeytum sem ekki þjóna tilgangi heimasíðunnar eða ganga verulega gegn hagsmunum félagsins.