03.06.2010
Keflavík framlengir við 6 leikmenn kvennaliðs
Körfuknattleiksdeild Keflavíkur hefur framlengt samningum við 6 leikmenn kvennaliðs Keflavíkur. Samningar þess efnis voru undirritaðir í gær. Þær stelpur sem framlengdu sínum samning við liðið voru Rannveig Randversdóttir, Svava Stefánsdóttir, Hrönn Þorgrímsdóttir, Pálína Gunnlaugsdóttir, Birna Valgarðsdóttir og Marín Karlsdóttir. Að auki samdi Körfuknattleiksdeild Keflavíkur við Hrund Jóhannsdóttur í aprílmánuði, en vonir standa til að hún eigi eftir að koma sterk inn í liðið á næsta tímabili. Sérstaklega þegar horft er til þess að Keflavíkurliðinu vantaði á köflum öflugan frákastara undir körfuna í mörgum mikilvægum leikjum á síðasta tímabili.
 Frá vinstri: Hrönn Þorgrímsdóttir, Rannveig Randversdóttir, Jón Halldór Eðvaldsson, Svava Stefánsdóttir og Pálína Gunnlaugsdóttir. Á myndina vantar Birnu Valgarðsdóttur og Marín Karlsdóttur.
Til baka
|