Fréttir
Fréttir
Karfa: Konur | 07.07.2010
4 ungar framlengja samning
Í gær framlengdu 4 stelpur samning sínum við Keflavík til tveggja ára, en með þessum undirskriftum er ljóst að Keflavíkurliðið verður hið sama og síðasta tímabil, þó með 2 nýja leikmenn, en það eru Hrund Jóhannesdóttir og Ingibjörg Jakobsdóttir. Stelpurnar sem framlengdu í gær eru Árný Sif Gestsdóttir (fædd 1993), Eva Rós Guðmundsdóttir (fædd 1994), Sigrún Albertsdóttir (fædd 1993) og Telma Lind Ásgeirsdóttir (fædd 1993). Stelpurnar eru allar mjög efnilegir leikmenn og eiga klárlega eftir að vera góður styrkur fyrir Keflavíkurliðið þegar fram líða stundir. Stjórn Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur óskar stelpunum alls hins besta á komandi árum með liðinu. Áfram Keflavík! Frá vins...  Meira

Karfa: Konur | 02.07.2010
Ingibjörg Jakobsdóttir til Keflavíkur
Ingibjörg Jakobsdóttir skrifaði í gær undir 2ja ára samning við kvennalið Keflavíkur. Ingibjörg lék með Grindavík á síðustu leiktíð en sleit krossbönd snemma á tímabilinu, sem gerði það að verkum að hún lék ekki meira með liðinu. Ingibjörg er öll að koma til í meiðslum sínum og gert er ráð fyrir að hún verði búin að ná sér að fullu þegar næsta leiktíð hefst. Ingibjörg er nýorðin tvítug, 173 cm á hæð og á að baki 12 A-landsleiki með kvennalandsliði Íslands. Einnig hefur hún spilað með 18 ára og 16 ára landsliðunum. Hún mun koma til með að styrkja kvennaliðið í baráttunni næstu tímabil. Stjórn Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur vill bjóða Ingibjörgu velkomna til félagsins og óskar henni velfa...  Meira

Karfa: Hitt og Þetta | 15.06.2010
17. júní kaffi körfunnar
Körfuknattleiksdeild Keflavíkur verður með fjáröflunarkaffi í Myllubakkaskóla þann 17. júní næstkomandi. Þar geta gestir og gangandi komið og fengið sér kaffi, gos, kökur og heita rétti eins og maginn leyfir. Það kostar 1500kr inn og börn yngri en 12 ára fá frítt. Nú er um að gera að taka fjölskylduna með þegar allir verða svangir og skella sér í Myllubakkaskóla þar sem vel verður tekið á móti öllum. Hlökkum til að sjá sem flesta. Áfram Keflavík!...  Meira

Karfa: Unglingaráð | 15.06.2010
Keflvíkingar áttu 6 landsliðsmenn um s.l. helgi
U 15 ára landslið drengja og stúlkna léku um s.l. helgi á Copenhagen Invitational sem fór fram í Farum í Danmörku. Keflvíkingar áttu 6 landsiliðsmenn í þessari ferð sem öll stóðu sig með mikilli prýði en flest voru þau að leika sína fyrstu landsleiki fyrir Íslands hönd. Það er skemmst frá því að segja bæði lið Íslands mættu öflug til leiks og höfnuðu í 2. sæti á mótinu. Lesa má ítarlega umfjöllun um leikina á www.kki.is . Landliðsmenn Keflavíkur á Copenhagen Invitational, taldir frá hægri: Sara Rún Hinriksdóttir, Sandra Lind Þrastardóttir, Aron Freyr Kristjánsson, Thelma Hrund Tryggvadóttir, Katrín Fríða Jóhannsdóttir og Ingunn Embla Kristínardóttir. Ingunn Embla var síðan valin í ú...  Meira

Karfa: Karlar | 09.06.2010
Sigmar Logi semur við Keflavík
Körfuknattleiksdeild Keflavíkur hefur komist að samkomulagi við Sigmar Loga Björnsson og mun hann leika með félaginu næstu 2 árin. Sigmar spilaði síðasta tímabil með Tindastól eftir að hafa verið búsettur í Kanada undanfarin ár. Hann var m.a. valinn efnilegasti leikmaðurinn á lokahófi Tindastóls eftir síðastliðna leiktíð. Sigmar á að baki 13 landsleiki með yngri landsliðum Íslands, en hann er fæddur 1990. Stjórn Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur vill bjóða Sigmar velkominn til félagsins og vonandi mun hann þroskast enn meira sem öflugur leikmaður á komandi tímabilum. Vænst er mikils af honum í framtíðinni, enda einn af efnilegustu leikmönnum landsins í sínum árgangi. Sigmar Logi Bjö...  Meira

Karfa: Unglingaráð | 09.06.2010
Æfingar fyrir 97-98 árgangana hefjast á morgun
Á morgun, fimmtudag, hefjast sumaræfingar fyrir krakka fædda '97 og ´98. Allar æfingar fara fram í Heiðarskóla og mun æfingatímabilið standa yfir frá 10. júní - 23. júlí, eða samtals 6 vikur. Einar Einarsson, yfirþjálfari yngri flokka mun stýra æfingunum og honum til aðstoðar verður Hörður Axel Vilhjálmsson. Æfingagjaldið fyrir sumaræfingarnar verður 5.000 kr. Æfingataflan: Strákar fæddir 97-98 Þriðjudaga kl.12.00-13.15 Fimmtudag kl.12.00-13.15 Föstudaga kl.11.00-12.15 Stelpur 97-98 Mánudaga kl.12.00-13.15 Miðvikudaga kl.12.00-13.15 Föstudaga kl.12.15-13.30...  Meira

Karfa: Konur | 03.06.2010
Keflavík framlengir við 6 leikmenn kvennaliðs
Körfuknattleiksdeild Keflavíkur hefur framlengt samningum við 6 leikmenn kvennaliðs Keflavíkur. Samningar þess efnis voru undirritaðir í gær. Þær stelpur sem framlengdu sínum samning við liðið voru Rannveig Randversdóttir, Svava Stefánsdóttir, Hrönn Þorgrímsdóttir, Pálína Gunnlaugsdóttir, Birna Valgarðsdóttir og Marín Karlsdóttir. Að auki samdi Körfuknattleiksdeild Keflavíkur við Hrund Jóhannsdóttur í aprílmánuði, en vonir standa til að hún eigi eftir að koma sterk inn í liðið á næsta tímabili. Sérstaklega þegar horft er til þess að Keflavíkurliðinu vantaði á köflum öflugan frákastara undir körfuna í mörgum mikilvægum leikjum á síðasta tímabili. Frá vinstri: Hrönn Þorgrímsdótt...  Meira

Karfa: Karlar | 31.05.2010
Arnar Freyr til liðs við Keflvíkinga
Körfuknattleiksdeild Keflavíkur hefur samið við Arnar Freyr Jónsson um að leika með Keflavík næstu tvö árin. Samningur þess efnis var undirritaður í kvöld, en Arnar hefur leikið með Grindvíkingum síðustu tvö tímabil. Arnar er ekki ókunnur aðstæðum í Keflavík, en hann er uppalinn Keflvíkingur og spilaði með meistaraflokk karla á árunum 2000-2008. Á því tímabili varð hann 4 sinnum Íslandsmeistari og 2svar sinnum bikarmeistari. Ljóst er að Arnar mun verða mikill styrkur fyrir Keflavíkurliðið á næstu leiktíð, en útlit er fyrir að liðið haldist óbreytt frá liðinni leiktíð, fyrir utan Sverrir Þór Sverrisson, sem eins og kunnugt er hefur ákveðið að hefja þjálfun hjá kvennaliði Njarðvíku...  Meira

Karfa: Yngri flokkar | 25.05.2010
Lokahóf yngri flokka - 6. bekkur og eldri
Lokahóf yngri flokka Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur fór fram s.l. fimmtudag og fengu eftirfarandi iðkendur einstaklingsverðlaun fyrir góða frammistöðu á tímabilinu: Hér má sjá alla verlaunahafa samankomna Mb. Drengja 11 ára Mestar framfarir: Arnór Elí Guðjónsson Mikilvægasti leikmaðurinn : Arnór Ingi Ingvason Besti leikmaðurinn: Marvin Harrý Guðmundsson Arnór Elí, Arnór Ingi og Marvin Mb. Stúlkna 11 ára Mestar framfarir: Svanhvít Ósk Snorradóttir Mikilvægasti leikmaðurinn : Thelma Dís Ágústsdóttir Besti leikmaðurinn: Elfa Falsdóttir Svanhvít, Thelma Dís og Elfa 7.fl. Drengja Mestar framfarir: Eiður Snær Unnarsson Mikilvægasti leikmaðurinn : Knútur Ingvarsson B...  Meira

Karfa: Yngri flokkar | 21.05.2010
Lokahóf yngri flokka 1-5 bekkur
Lokahóf yngri flokka var haldið í Toyota höllinni í gær þar sem iðkendum voru veittar viðurkenningar fyrir tímabilið. Eftir verðlaunaafhendingu var síðan boðið upp á pulsupartý. Hér að neðan má sjá nokkrar myndir af yngri iðkendum félagsins með sínum þjálfurum. Myndir og umfjöllun um eldri iðkendur og verðlaunahafa kemur fljótlega á heimasíðuna. Stelpurnar í 1.-2. bekk með Helenu þjálfara Strákarnir í 1.-2. bekk með Ella þjálfara Helena með stelpurnar í 3. bekk Stelpurnar í 4.-5. bekk með Kolla þjálfara Strákarnir í 3.-5. bekk með Gunna þjálfara...  Meira


Eldri fréttir