Sund | 05.02.2012
Vel heppnuð ferð á Meistaramót N-Bretlands í Sheffield
Síðustu vikuna í janúar hélt sterkt lið 15 sundmanna ásamt þremur starfsmönnum til Sheffield á Bretlandi til þess að keppa á Meistaramóti N-Bretlands (Great Britain Northern Region Championships).
Ferðalagið á áfangastað gekk vel og skilaði vélin hópnum nánast upp að dyrum. Mótið var mjög sterkt og tilgangurinn með ferðinni var að gefa sundmönnunum okkar tækifæri til þess að keppa við öflugri sundmenn en þeir hafa áður gert og það er öruggt að því markmiði var náð. Við fórum einnig saman út að borða og slökuðum á með því að skoða okkur um og kíkja aðeins í búðir í miðbæ Sheffield. Laugin var frábær og við vorum virkir þáttakendur í mótinu þar sem ekkert stoppaði okkur.
Þó keppnin væri... Meira
|
|
Karfa: Karlar | 04.02.2012
Tap hjá stelpunum - sigur hjá strákunum og bikar á morgun!
Stelpurnar okkar áttu leik á Stykkishólmi við Snæfellsstúlkur á miðvikudagskvöld og því miður endaði sá leikur með tapi fyrir okkar stelpum. Snæfellsstúlkur komust í 10-0 forystu í upphafi leiks og voru okkar stelpur að elta allan tímann, með misjöfnum árangri. Minnstur varð munurinn 2 stig, en því miður komst Keflavík ekki nær í leiknum. Lokatölur voru 91-83 fyrir Snæfell.
Pálína Gunnlaugsdóttir var atkvæðamest með 33 stig, en Jaleesa Butler skoraði 18 stig og hirti 14 fráköst.
Strákarnir okkar áttu heimaleik gegn Valsmönnum á fimmtudagskvöld. Leikurinn var frekar bragðdaufur og hafa Valsmenn átt slakt tímabil með engan sigur það sem af er. Keflvíkingar náðu yfirburðarstöðu í öðrum leikh... Meira
|
|
Karfa: Yngri flokkar | 03.02.2012
Hellingur af körfubolta - Leikjadagskrá helgarinnar
Fjórir flokkar Keflavíkur verða í eldlínunni um helgina þegar 3. umferð fjölliðamóta yngri flokka á Íslandsmótinu heldur áfram.
Unglingaflokkur kvenna hefur helgardagskránna í kvöld kl. 18.30 þegar lið Snæfells heimsækir Toyotahöllina. Unglingaflokkur karla á síðan leik á sunnudag í Ljónagryfjunni kl.15.30 gegn geysisterku liði UMFN.
Loks lýkur helginni með sannkölluðum stórleik þegar lið KFÍ mætir Keflvíkingum í Toyotahöllinni í undanúrslitum Poweradebikar karla kl. 19.15. Segja má að Keflvíkingar séu í dauðafæri á að komast í úrslitaleikinn í Laugardagshöll þetta árið, og nú ríður á að menn komi einbeittir til leiks. Þrátt fyrir að lið KFÍ leiki í 1. deild hafa þeir haft mikla yfirburð... Meira
|
|
Knattspyrna | 03.02.2012
Keflavík - Hamar á laugardag kl. 10:00
Keflavík og Hamar leika æfingaleik í Reykjaneshöllinni á laugardaginn kl. 10:00.... Meira
|
|
Getraunir | 02.02.2012
Súpufundur hjá tippurum á laugardaginn
Núna á laugardaginn 4. febrúar ætla tipparar í Keflavíkur-getraunum að koma saman og borða súpu ásamt öðrum gestum. Það er mæting kl. 11:30. Tipparar, sjáumst kátir og hressir.... Meira
|
|
Karfa: Karlar | 31.01.2012
Karfan.is: Gatorade-leikmaður þrettándu umferðar
Keflvíkingar gerðu góða ferð norður í Skagafjörð í þrettándu umferð Iceland Express deildar karla og skelltu heitum Stólum 72-91 þar sem Magnús Þór Gunnarsson fór fyrir Keflavíkurliðinu með 25 stig og 10 fráköst!
,,Þetta gekk vel hjá okkur og Tindastóll átti aldrei séns frá fyrstu mínútu,“ sagði Magnús í samtali við Karfan.is. En var ekkert erfitt að innleiða nýjan mann í þetta sem kom beint í leik úr flugvélinni?
,,Hann er í formi og leit vel út á æfingu í gær en við erum bara mjög ánægðir og stoltir af Val Orra sem lítur mjög vel út um þessar mundir. Þá styttist í að Arnar Freyr fari að koma á æfingar en hann er í dag í skoðun hjá lækni eftir aðgerðina,“ sagði Magnús en meiðsli hafa v... Meira
|
|
Knattspyrna | 31.01.2012
Sigur á Skaganum
Keflvíkingar gerðu góða ferð á Akranes um síðustu helgi og unnu heimamenn 1-2 í Fótbolta.net-mótinu. Arnór Ingvi Traustason kom Keflavík yfir á 6. mínútu leiksins en Skagamenn jöfnuðu á 20. mínútu. Það var svo Bojan Stefán Ljubicic sem skoraði sigurmarkið á 65. mínútu. Keflvíkingar höfðu áður tapað fyrir Breiðablik og FH í mótinu. Enn á eftir að leika um sæti í mótinu og þar mætast Keflavík og Selfoss en ekki er búið að ákveða leikdag.
Lengjubikarinn byrjar svo fimmtudaginn 16. febrúar þegar Keflavík mætir Víkingum í Egilshöllinni og hefst sá leikur kl. 19:00.
Arnór Ingvi og Bojan Stefán gerðu mörkin á Akranesi.... Meira
|
|
Aðalstjórn | 31.01.2012
Aðalfundur knattspyrnudeildar Keflavíkur 2012
Aðalfundur knattspyrnudeildar Keflavíkur 2012
Aðalfundur knattspyrnudeildar Keflavíkur verður haldinn í kvöld
kl. 20:00 í félagsheimili okkar Sunnubraut 34 2. hæð salur 1
Þorsteinn Magnússonn formaður er einn í kjöri og er því sjálfkjörinn.
Dagskrá fundarins má finna hér
Einar Haraldsson formaður Keflavíkur.... Meira
|
|
Fimleikar | 30.01.2012
Þrepamót 4 - 1.þrep
Þrepamót var haldið í Fimleikahúsi Ármanns s.l. helgi 28-29 janúar. 13 stúlkur fóru fyrir hönd Fimleikadeild Keflavíkur. Stelpurnar stóðu sig allar með prýði og tryggðu nokkrar sér sæti á verðlaunapalli.
4.þrep 13 ára og eldri , Aðalheiður Lind Björnsdóttir 3.sæti á stökki með einkunnina 11,550.
4.þrep 11 ára, Alísa Rún Andrésdóttir 3.sæti á jafnvægisslá með einkunnina 15,200.
3.þrep 13 ára og eldri, Ingunn Eva Júlíusdóttir 2 sæti á stökki með einkunnina 12,033 og 2.sæti á tvíslá með einkunnina 14,600, Ingibjörg Þóra Þórarinnsdóttir 1.sæti á gólfi með einkunnina 14,933 og Sólný Sif Jóhannsdóttir 1.sæti á stökki með einkunnina 12,133.
Við óskum stelpunum til hamingju með frábæran árangur... Meira
|
|
Sund | 30.01.2012
Æfingadagur á laugardaginn-Fyrir Sprettfiska, Flugfiska og Sverðfiska
Æfingardagur fyrir Sprettfiska, Flugfiska og Sverðfiska verður næsta laugardag kl. 15-17 í Vatnaveröld. Sundmenn þurfa að vera tilbúnir og komnir í sundföt kl. 15.00 svo mælt er með því að mæta kl. 14.40. Allir þurfa að hafa sundgleraugu og sundhettu með sér. Á æfingunni verða ýmis tækniatriði æfð undir stjórn yfirþjálfara og með þjálfurum yngri hópa. Æfingadagurinn endar svo á leikjum sem styrkja liðsandann. Sjáumst öll á laugardaginn!
... Meira
|
|
Aðalstjórn | 30.01.2012
Frestun á aðalfundi körfuknattleiksdeildar Keflavíkur
Frestun á aðalfundi körfuknattleiksdeildar Keflavíkur
Aðalfundur körfuknattleiksdeildar Keflavíkur
sem auglýstur er mánudaginn 30. janúar er frestað um óákveðin tíma.
Aðalfundurinn verður auglýstur síðar hér á heimasíðu félagsins.
Fh. aðalstjórnar Keflavíkur
Einar Haraldsson formaður Keflavíkur... Meira
|
|
Karfa: Konur | 30.01.2012
3 sigrar á 4 dögum
Það er heldur betur búið að vera nóg að gera hjá Keflavíkurliðunum okkar á undanförnum dögum, en 3 sigrar hafa komið í húsa hjá karla- og kvennaliðinu síðustu fjóra daga.
Kvennalið Keflavíkur átti svo sannarlega harm að hefna á miðvikudagskvöld þegar þær mættu Njarðvík í annað sinn á þremur dögum. Þær höfðu ekki gleymt þeirri staðreynd að Njarðvíkurstúlkur slógu þær út úr Powerade bikarnum þremur dögum áður og voru komnar í vígarhug. Sá vígarhugur sást þó ekki í fyrri hálfleik, þar sem Njarðvík leiddi nokkuð örugglega mest allan hálfleikinn. Staðan í hálfleik var 38-33 fyrir Njarðvík. Klærnar uxu þó nokkuð jafnt og þétt hjá Keflavík í seinni hálfleik og náðu þær að halda nokkuð öruggri for... Meira
|
|
Knattspyrna | 29.01.2012
Æfingar hjá 8. flokki að hefjast á ný
Æfingar hjá 8. flokki hefjast á ný í þessari viku.
Æfingarnar eru fyrir stráka og stelpur fædd 2006 og 2007.
Boðið verður upp á 2 æfingar í viku og er í boði að skrá barnið á eina eða tvær æfingar í viku.
ÍÞRÓTTAHÚSIÐ SUNNUBRAUT:
Æfingar á þriðjudögum kl. 17:25 - 18:20.
Fyrsta æfing verður þriðjudaginn 31. janúar og síðasta æfing tímabilsins
verður 24. apríl (frí tvo þriðjudaga í kringum páska: 3. og 10. apríl).
REYKJANESHÖLL:
Æfingar á föstudögum kl. 16:40 - 17:25.
Fyrsta æfing verður föstudaginn 3. febrúar og síðasta æfing tímabilsins
verður 27. apríl (frí tvo föstudaga í kringum páska: 6. og 13. apríl).
AÐ GEFNU TILEFNI SKAL SÉRSTAKLEGA
BENT Á EFTIRFARANDI:... Meira
|
|
Knattspyrna | 29.01.2012
Góður sigur hjá stelpunum
Keflavík vann nokkuð öruggan sigur á Álftanesi í Faxaflómaótinu en leikið var í Reykjaneshöllinni á föstudagskvöldið. Leiknum lauk með 2-0 sigir en okkar stelpur voru mun sterkari allan tímann og áttu klárlega að setja fleiri mörk. Álftanesstúlkur fengu ekki færi í leiknum en þær áttu tvö eða þrjú langskot sem voru ekki hættuleg. Á meðan voru Keflavíkurstelpur að stjórna leiknum og fá þó nokkuð af færum og hálffærum.
Fyrsta markið kom strax á 3. mínútu og var Nína Ósk Kristinsdóttir þar að verki með frábært skot af 40 metra færi í vinkilinn!! Hún var síðan aftur á ferðinni á 26. mínútu og skoraði með góðu skoti. Keflavík komið í 2-0 og þar við sat. Þetta var prýðisleikur hjá stelpu... Meira
|
|
Knattspyrna | 29.01.2012
Jóhann til Keflavíkur
Jóhann Ragnar Benediksson er genginn til liðs við Keflavík og hefur gert 2ja ára samning við félagið. Jóhann er 31 árs, vinstri fótar leikmaður sem getur leikið á miðjunni, á kantinum og sem bakvörður. Hann kemur frá Fjarðabyggð þar sem hann hefur leikið undanfarin ár en Jóhann var í okkar herbúðum á árunum 1999-2002 og lék þá alls 70 leiki með Keflavík og skoraði fimm mörk, þar af voru 43 leikir og eitt mark í efstu deild. Við bjóðum Jóhann velkominn og það eru mjög ánægjulegar fréttir að hann sé kominn aftur til Keflavíkur og ljóst að hann mun styrkja liðið okkar verulega.... Meira
|
|
Karfa: Yngri flokkar | 27.01.2012
Fjölliðamótin hefjast á ný - leikjadagskrá helgarinnar
Fjölliðamót yngri flokka á Íslandsmótinu hefjast á nýjan leik um helgina þegar 3. umferð hefst með keppni í fjórum flokkum. Eitt mótanna fer fram á heimavelli í Toyotahöllinni þar sem 11. flokkur drengja leikur.
8. flokkur stúlkna fer á Krókinn þar sem bæði A og B liðin leika í A-riðli og lögðu liðin af stað skömmu eftir hádegið í dag, enda ætlar hópurinn að sjá leik Keflavíkur og Tindastóls sem fer fram í IE-deild karla á Króknum í kvöld kl. 19.15. Netútsending verður frá leiknum og má líklega leita tengils fyrir hana á heimasíðu Stólanna.
Keflavík mætir síðan liði Hauka í IE-deild kvenna í Toyotahöllinni á morgun, laugardag, og hefst leikurinn kl. 16.30.
Dagskrá fjölliðamóta helgarinn... Meira
|
|
Karfa: Karlar | 27.01.2012
Keflavík-KFÍ í undanúrslitum Powerade karla
Rétt í þessu var lokið við að draga í undanúrslit í Poweradebikarnum. Óhætt er að segja að heppnin hafi verið með okkur að þessu sinni því liðið fékk heimaleik eftir þrjá útileiki í röð og verður það hlutskipti þeirra KFÍ manna að leggja í langferð suður með sjó að þessu sinni.
Í hinni viðureigninni mætast Tindastóll og KR en leikið verður á Sauðárkróki.
Leikirnir fara fram dagana 4.-6. febrúar.... Meira
|
|
Knattspyrna | 27.01.2012
Leikir hjá kvenna- og karlaliðinu
Það eru tveir leikir framundan hjá meistaraflokkum Keflavíkur. Í kvöld, föstudag, spila stelpurnar við Álftanes í Faxaflóamótinu. Leikurinn verður í Reykjaneshöllinni og hefst kl. 19:00. Stelpurnar fóru vel af stað í keppninni og unnu Hauka í fyrsta leiknum. Strákarnir spila svo við Akranes á laugardag kl. 10:30 í fótbolta.net-mótinu. Sá leikur verður í Akraneshöllinni. Leikurinn er síðasti leikurinn í riðlinum en Keflavík tapaði fyrstu tveimur leikjum sínum. ... Meira
|
|
Fimleikar | 27.01.2012
Krakkafimleikar
Skráningar byrja á nýtt námskeið í krakkafimleikum fyrir börn fædd 2007-2009, 3.ferbúar n.k. Námskeiðið er 6.vikur á laugardögum, 25.02.12-07.04.12 og kostar 5.000 kr . Skráning fer fram hér til hliðar á síðunni Skráning í fimleika.
Kveðja,Fimleikadeild.... Meira
|
|
Karfa: Karlar | 27.01.2012
Douse til Keflavíkur
Karlaliðið hefur nú styrkt leikmanna hópinn sinn, en rétt í þessu var nýr leikmaður að koma til landsins sem ætlað er að fylla í skarðið sem Steve G skildi eftir sig. Kris Douse hefur samið við Keflavík og mun hann væntanlega spila sinn fyrsta leik á morgun gegn Tindastól í Iceland Expressdeildinni á Króknum. Douse er fæddur 1986 og kemur úr Point Park háskólanum, 198cm á hæð og spilar stöðu framherja. Sterkur og kraftmikill leikmaður og á eflaust eftir að láta heyra í sér inná vellinum. Með Kanadískt og Breskt vegabréf.
Douse var að spila með Mersey Tigers frá Liverpool á þessu tímabili en í því liði spilar einnig gamalkunnur leikmaður Keflavíkur Calvin Davis sem spilaði á árunum 2000-1 ... Meira
|
|
Badminton | 26.01.2012
æfing fellur niður 26. jan
Æfingin í dag, fimmtudaginn 26. jan 2012 fellur niður vegna veðurs.
Ef þið viljið hafa samband vegna æfingagjalda endinlega hringið í símann hjá mér, nr.869-2365
kveðja
Stefán Már Jónasson, þjálfari... Meira
|
|
Aðalstjórn | 26.01.2012
Aðalfundur fimleikadeildar Keflavíkur 2012
Aðalfundur fimleikadeildar Keflavíkur 2012
Aðalfundur fimleikadeildar Keflavíkur verður haldinn í kvöld kl. 20:00 í Íþróttaakademíunni.
Nýr formaður tekur við en Andrés Þórarin Eyjólfsson er einn í kjöri
Dagskrá fundarins má finna hér... Meira
|
|
Sund | 25.01.2012
Sundmenn ÍRB keppa í Sheffield
Great Britain Northern Region Championships
Um helgina fara 15 sundmenn frá ÍRB til Sheffield til þess að keppa á stóru sundmóti. Þetta mót er erfitt og lágmörkin voru svipuð og lágmörkin fyrir Íslenska landsliðið sem keppti í Lúxemburg á síðasta ári, svo það er mjög gott að vera með 15 sundmenn á þessu móti.
Keppnin stendur í 2 daga með riðlakeppni í 4 hlutum og úrslitum í 4 hlutum og aðeins 30 mínútna hlé á milli.
Sundmenn verða að takast á við það krefjandi verkefni að ferðast og keppa í mjög hröðum riðlum mjög frábrugðnu því sem gerist á ÍM25 og ÍM50.
Mótið er í 50 m laug og því góður undirbúningur fyrir ÍM50 sem verður í apríl.
Sundmenn verða að ná bestu tímum sín... Meira
|
|
Aðalstjórn | 25.01.2012
Aðalfundur sunddeildar Keflavíkur 2012
Aðalfundur sunddeildar Keflavíkur verður haldinn í kvöld kl. 20:00 í félagsheimili okkar að Sunnubraut.
Falur Helgi Daðason er einn í kjöri til formanns.
Dagskrá fundarins má finna hér... Meira
|
|
Karfa: Konur | 24.01.2012
Keflavíkurstúlkur úr leik í Powerade bikar
Það var að duga eða drepast fyrir erkifjendurna í kvennaliði Keflavíkur og Njarðvíkur í gærkvöldi, en liðin áttust við í 8-liða úrslitum Powerade bikarkeppninnar. Leikurinn var háspenna lífshætta undir lokin og fór í framlengingu þar sem Njarðvíkurstúlkur báru sigur úr býtum 78-72.
Leikurinn þróaðist nokkuð jafnt í fyrri hálfleik og var staðan 36-38 í hálfleik. Í 4. leikhluta höfðu Keflavíkurstúlkur náð 10 stiga forskoti þegar um 6 mínútur lifðu leiks, en Njarðvík kom til baka og minnkaði muninn hratt. Umdeilt atvik átti sér stað undir lok leiks þegar að dómarar leiksins leiðréttu misskilning sem átti sér stað í fyrri sókn hjá Njarðvík, sem endaði með því að í stað þess að taka innkast þe... Meira
|
|
Sund | 24.01.2012
Lokastaðan í XLR8 og Ofurhuga 2011
Nú er lokastaðan 2011 í XLR8 og Ofurhuga orðin ljós þar sem öll Íslandsmet sem sett voru árið 2011 hafa verið staðfest.
Það var heilmikil framför hjá sundmönnum okkar árið 2011 í samanburði við 2010.
Fyrst má nefna að núna tóku 191 sundmaður þátt í keppni í 50m eða lengra sundi en árið á undan voru þeir 153.
Í ár náðu tveir sundmenn meira en 4000 stigum það voru Jóhanna Júlía (stúlkur) endaði með 4064 stig og Ólöf Edda (Telpur) með 4040 stig en aðeins einn árið á undan.
Baldvin Sigmarsson (Drengir) var stigahæsti strákurinn með rétt undir 4000 stigum eða 3991 stig.
Hæst í öðrum aldurshópum voru: Sunneva Dögg (Meyjar) með 3903 stig, Árni Már (Karlar) með 3878 stig, Jóna He... Meira
|
|
Tilkynningar | 24.01.2012
Aðalfundi Taekwondodeildar Keflavíkur sem átti að fara fram í kvöld hefur verið fresta um óákveðin tíma nánar auglýst síðar. Fh. aðalstjórnar Keflavíkur Einar Haraldsson formaður.
... Meira
|
|
Knattspyrna | 24.01.2012
Herrakvöld Keflavíkur verður 25. febrúar
... Meira
|
|
Knattspyrna | 23.01.2012
Sigur í fyrsta leik hjá Snorra
Keflavík vann góðan 4-2 sigur á Haukum í Faxaflóamóti kvenna en leikið var í Reykjaneshöllinni á laugardaginn.
Haukastelpur voru nokkuð sprækari í upphafi en leikurinn jafnaðist síðan og Keflavíkurstelpur komust betur inn í leikinn þegar á leið. Þær náðu forystu um miðjan hálfleikinn þegar Dagmar Þráinsdóttur skoraði baráttumark. Haukar náðu að jafna en Nína Ósk Kristinsdóttir kom Keflavík yfir með laglegu skoti utan teigs og staðan í hálfleik var 2-1.
Í síðari hálfleik voru Keflavíkurstelpur betri allan tímann þó Haukastelpur hafi fengið sín færi og skorað úr einu. Keflavík fékk mun fleiri færi og skoruðu úr tveimur þeirra en þar var á ferðinni Bryndís Þóra Ásgeirsdóttir sem kom i... Meira
|
|
Fimleikar | 23.01.2012
Aðalfundur
Aðalfundur Fimleikadeildar Keflavíkur fer fram í Íþróttaakademíunni, n.k. fimmtudag 26. janúar kl. 20:00. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Við hvetjum sem flesta foreldra og iðkendur til að mæta og eiga með okkur góða stund.... Meira
|
|
Fimleikar | 23.01.2012
Þrepamót 4 , 3 og 2. þrep
Þrepamót fer fram í Laugabóli, Ármanni næstkomandi 28-29 janúar. 17.Stelpur fara fyrir hönd Fimleikadeild Keflavíkur. Óskum þeim góðs gengis á mótinu.
Kveðja,Fimleikadeild.... Meira
|
|
Karfa: Karlar | 23.01.2012
Karlarnir komnir í 4-liða úrslit Powerade bikar
Keflavíkurdrengirnir tryggðu sér í gær sæti í 4-liða úrslitum Powerade bikarkeppninnar í gær, en þeir lögðu Fjölnismenn að velli á heimavelli þeirra síðarnefndu. Lokatölur leiksins urðu 83-102 fyrir Keflavík og voru Keflvíkingar aldrei með sigurinn í hættu. Þeir náðu ávallt að halda 10-20 stiga forskoti og voru ekki á því að láta það frá sér.
Jarryd Cole átti flottan leik fyrir Keflavík og skoraði 35 stig, ásamt því að hirða 13 fráköst. Charles Parker skoraði 17 stig og hirti 10 fráköst, Magnús Þór Gunnarsson með 15 og Halldór Örn Halldórsson 13.
Þá er ljóst að Keflvíkingar eru búnir að tryggja sér sæti í 4-liða úrslitum ásamt Tindastól og KFÍ. Í kvöld mætast svo KR og Snæfell og mun það ... Meira
|
|
Aðalstjórn | 23.01.2012
Frestun á aðalfundi taekwondodeildar Keflavíkur
Áður auglýstum aðalfundi taekwondodeildar Keflavíkur
sem auglýstur er þriðjudaginn 24. janúar er frestað um óákveðin tíma.
Aðalfundurinn verður auglýstur síðar hér á heimasíðu félagsins.
Fh. aðalstjórnar Keflavíkur
Einar Haraldsson formaður Keflavíkur... Meira
|
|
Aðalstjórn | 23.01.2012
Aðalfundur badmintondeildar Keflavíkur
Aðalfundur badmintondeildar Keflavíkur er kl. 20:00 í kvöld í félagsheimil okkar að Sunnubraut.
Nýr formaður tekur við en Stefán Már Jónasson er einn í kjöri.
Einar Haraldsson formaður Keflavíkur.... Meira
|
|
Aðalstjórn | 22.01.2012
AÐALFUNDIR DEILDA KEFLAVÍKUR ÁRIÐ 2012
Boðað er til aðalfunda deilda
Keflavíkur íþrótta- og ungmennafélags.
Hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins.
Vakin er athygli á því að nú þarf sá aðili sem hefur áhuga á að gefa kost á sér til formanns að skila inn framboði fimm dögum fyrir aðalfund viðkomandi deildar. Framboðum skal skila inn til skrifstofu félagsins eða senda í tölvupósti á keflavik@keflavik.is. Ekki er heimilt að stinga upp á formanni á aðalfundi deildar.
Skilafrestur til að skila inn framboði til formanns deildar er eftirfarandi:
Badmintondeild 17. janúar fyrir kl. 24:00
Taekwondodeild 18. janúar fyrir kl. 24:00
Sunddeild 19. janúar fyrir kl. 24:00
Fimleikadeild 20. janúar fyrir kl. 24:0... Meira
|
|
Karfa: Hitt og Þetta | 20.01.2012
Stuðningsmaðurinn
Nú ætlum við að byrja með nýjan lið hér á síðunni, fyrir hvern heimaleik munum við fá stuðningsmenn til að skrifa um leikin og fá þeir fullt frelsi með að lýsa leikdegi fyrir okkur.Hér kemur sá fyrsti.
Ég var búnn að horfa á þennan leik lengi á dagatalinu og búinn að bíða eftir honum fullur eftirvæntingar. Já þetta er leikur Keflavíkur og Grindavíkur sem fór fram á Sunnubrautinni á fimmtudeginum 19. janúar kl. 19:15. Framan af degi sinnti ég mínu námi og kíkti í Íþróttahúsið á Ásbrú og tók góða æfingu, Tommi Tomm bauð mér að fara inn í sal að skjóta bolta og handleggsbrjóta Sigga Þorsteins í leiðinni! Gaman að því. Þar sá ég meðal annars okkar fyrrum liðsmann Sigurð Gunnar Þorsteinsson og ... Meira
|
|
Knattspyrna | 20.01.2012
Keflavík - FH á laugardag kl. 10:00
Á laugardaginn leika Keflavík og FH í Fótbolta.net-mótinu. Leikurinn verður í Reykjaneshöllinni og hefst kl. 10:00. Keflavík tapaði fyrir Breiðablik í fyrsta leik sínum í mótinu og FH-ingar töpuðu fyrir ÍA. Bæði lið þurfa því verulega á sigri að halda. Riðlakeppninni lýkur svo laugardaginn 28. janúar.... Meira
|
|
Karfa: Konur | 19.01.2012
Góður sigur á Valsstúlkum
Keflavíkurstúlkur tefldu fram nýjum leikmanni í gærkvöldi þegar þær mættu Valsstúlkum, en leikið var í Toyota Höllinni. Svo fór að Keflavíkurstúlkur lönduðu góðum sigri 89-62. Gamli jálkurinn úr kvennaliði Keflavíkur, Rannveig Randversdóttir, var með góða umfjöllun um leikinn á karfan.is og verður hún nýtt hér:
Keflavík fékk Valskonur í heimsókn í Toyota-höllina í kvöld þar sem Valskonur veittu heimakonum litla fyrirstöðu. Leikurinn endaði 89-62 Keflavík í vil og voru þær Pálína Gunnlaugsdóttir og Jaleesa Butler stigahæstar með 23 stig hvor. Hjá Val var Melissa Leichlitner með 25 stig og sú eina með lífsmark í sínu liði. Þá tefldi Keflavík fram nýjum leikmanni innan sinnar raða en hún heit... Meira
|
|
Knattspyrna | 19.01.2012
Samúel Kári aftur til Herenveen
Samúel Kári Friðjónsson er á leið til æfinga hjá hollenska félaginu Herenveen. Hann var þar fyrir jól og nú hefur hollenska liðið óskað eftir því að fá Samúel aftur. Samúel verður hjá Herenveen frá 29. janúar til 5. febrúar. Í fyrri heímsókninni æfði Samúel með unglingaliði Herenveen og lék einn leik. Það var 4-2 sigurleikur og skoraði okkar maður eitt markanna en hann lék sem miðvörður í leiknum.
Samúel Kári er fæddur árið 1996 og leikur með 3. flokki Keflavíkur. Hann er einn af okkar efnilegustu leikmönnum og hefur þegar skrifað undir leikmannasamning hjá félaginu. Samúel lék með U-17 ára landsliði Íslands á Norðurlandamótinu síðastliðið sumar þar sem hann lék fjóra leiki og skora... Meira
|
|
Karfa: Konur | 18.01.2012
Gerrard yfirgefur Keflavík - Shanika Butler styrkir kvennaliðið
Steven Gerrard Dagustino hefur ákveðið að yfirgefa herbúðir Keflvíkinga að sinni og halda áfram með feril sinn á Spáni. Honum bauðst gott tilboð frá spænsku liði sem hann gat ekki hafnað, en klásúla í samning hans kvað á um að myndi honum berast betra tilboð annars staðar frá, þá myndi Keflavík ekki standa í vegi fyrir því. Við þökkum Steven fyrir þann tíma sem hann hefur spilað með Keflavíkurliðinu og óskum honum velfarnaðar með feril sinn.
Kvennalið Keflavíkur hefur styrkt sig fyrir lokaátökin í Iceland Express deild kvenna. Shanika Butler hefur gengið til liðs við Keflavíkurstúlkur og vonandi mun hún styrkja liðið enn frekar fyrir komandi baráttu í bikarkeppninni og Íslandsmótinu.
Shan... Meira
|
|
Knattspyrna | 16.01.2012
Tap gegn Blikum
Keflavík tapaði fyrir Breiðabliki í fyrsta leik okkar í Fótbolta.net-mótinu. Lokatölur urðu 1-2 en leikið var í Reykjaneshöllinni á Laugardaginn. Elfar Árni Aðalsteinsson kom Blikum yfir en Ásgrímur Rúnarsson jafnaði fyrir okkar menn með skalla eftir hornspyrnu. Það var síðan Sverrir Ingi Ingason sem skoraði sigurmark Breiðabliks úr víti. Þess má geta að Jóhann Benediktsson lék með Keflavík í leiknum en hann lék síðast með liðinu árið 2002.
Næsti leikur Keflavíkur er gegn FH í Fótbolta.net-mótinu næsta laugardag. Sá leikur verður einnig í Reykjaneshöllinni kl. 10:00.
Keflavík: Ómar Jóhannsson - Viktor Smári Hafsteinsson, Ásgrímur Rúnarsson, Haraldur Freyr Guðmundsson, Jóhann R. Ben... Meira
|
|
Knattspyrna | 16.01.2012
Dómaranámskeiðinu frestað fram í febrúar
Knattspyrnudómaranámskeiði sem vera átti 16. janúar hefur verið frestað og verður í byrjun febrúar. Nánar auglýst síðar.... Meira
|
|
Karfa: Karlar | 15.01.2012
Fjölnismenn lagðir í IE deild karla
Fjölnismenn mættu í Toyota Höllina á fimmtudagskvöld og spiluðu þar við okkar menn, en leikið var í Iceland Express deild karla. Fyrr í vikunni höfðu þessi sömu lið dregist saman í 8-liða úrslitum Powerade bikars og því forvitnilegur leikir fyrir þær sakir einnig.
Það voru Fjölnismenn sem byrjuðu leikinn betur og leiddu fyrstu 15 mínúturnar. En Keflvíkingar höfðu komið sterkir undir lokin í fyrri hálfleik og voru komnir með forystu þegar hálfleiksflautan gall, 45-41. Lítið var um að vera í 3. leikhluta og gekk leikurinn bara sinn gang. Í 4. leikhluta komu Keflvíkingar sterkir inn og gerðu í raun út um leikinn, en lokatölur voru 96-81.
Keflvíkingar plöntuðu sér í annað sætið í deildinni o... Meira
|
|
Skotdeild | 15.01.2012
Aðalfundur Skotdeildar Keflavíkur
Laugardaginn 28 kl 14:00 á Sunnubraut 34
Hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins.
Vakin er athygli á því að nú þarf sá aðili sem hefur áhuga á að gefa kost á sér til formanns að skila inn framboði fimm dögum fyrir aðalfund viðkomandi deildar. Framboðum skal skila inn til skrifstofu félagsins eða senda í tölvupósti á keflavik@keflavik.is. Ekki er heimilt að stinga upp á formanni á aðalfundi deildar.
Skilafrestur til að skila inn framboði til formanns deildar er 22. janúar fyrir kl. 24:00
Úrdráttur úr lögum félagsins
Aðalfundir deilda.
20. gr.
Framboð til formanns skal berast skrifstofu félagsins eigi síðar en 5 dögum fyrir auglýstan aðalfund viðkomandi deildarinna... Meira
|
|
Sund | 14.01.2012
Skráðu vin í sund og fáðu afslátt á æfingagjöldunum!
Kæru sundmenn og foreldrar í ÍRB.
Næstu 3 vikurnar (til og með 1.febrúar 2012) verður ný leið í
boði við að skrá nýjan sundmann í sund.
Nú geta þeir sem fá nýjan sundmann til þess að skrá sig og byrja að æfa sund hjá UMFN eða KEFLAVÍK fengið afslátt af æfingagjaldi sínu.
Afslátturinn verður sú upphæð sem nýi sundmaðurinn okkar greiðir í æfingagjöld í einn mánuð.
Þið fáið vin ykkar eða einhvern sem þið þekkið og hefur áhuga á að prófa að æfa sund til að koma á prufuæfingu i Vatnaveröld.
Ef viðkomandi skráir sig á æfingar út tímabilið og hefur nefnt nafn tilvísunarvinar á prufuæfingunni og skráð hann á skráningarblað fær tilvísunarvinurinn afslátt sem nemur ö... Meira
|
|
Sund | 13.01.2012
Eldri hópur - sund er frábær líkamsrækt
Viltu æfa sund en stefnir ekki á stórmót erlendis? Viltu æfa sund þér til skemmtunnar undir handleiðslu bestu þjálfara landsins? Þá er Eldri hópur fyrir þig. Eldri hópur hefur verið í boði hjá sunddeildinni í nokkurn tíma og fyrir sundmenn 13 ára og eldri sem eru vel syndir og hafa jafnvel æft áður fyrr. Þetta er hópur sem æfir undir þjálfurunum Anthony Kattan og Eðvarði Þór Eðvarðssyni. Hver sundmaður mætir eins og hann vill og setur sér sjálfur sín eigin markmið, hvort sem það er að keppa á einhverjum mótum eða bara vera í góðum félagsskap og stunda skemmtilega íþrótt. Í þessum mánuði hafa verið gerðar ákveðnar breytingar á æfingartímum Eldri hóps. Sundmönnum býðst að synda 5 seinnipartsæ... Meira
|
|
Knattspyrna | 13.01.2012
Fótbolti.net-mótið hefst á laugardag
Fótbolti.net-mótið hefst á laugardag og þá leika okkar menn gegn Blikum. Leikurinn verður í Reykjaneshöllinni og hefst kl. 10:00 árdegis. Áfram verður leikið næstu tvo laugardaga og við spilum gegn FH í Reykjaneshöllinni þann 21. janúar og á móti ÍA í Akraneshöllinni laugardaginn 28. Efsta lið riðilsins leikur svo til úrslita í mótinu gegn sigurliði B-riðils, liðin í 2. sæti riðlanna leika um 3. sætið o.s.frv. Ekki má gleyma að Keflavík á titil að verja en liðið vann mótið á síðasta ári.... Meira
|
|
Karfa: Yngri flokkar | 12.01.2012
Sigur hjá 9. flokki stúlkna
9. flokkur stúlkna er kominn í 4 liða úrslit í bikarnum eftir 59 - 29 sigur á Haukum í Toyota Höllinni miðvikudagskvöldið 11. janúar.
Sigurinn var aldrei í hættu. Haukar komust einu sinni yfir í leiknum en það var á upphafsmínútum leiksins (4 – 2) en eftir það skildu leiðir. Alltaf smá taugaspenna í stúlkunum í upphafi leiks, en það er eitthvað sem þær þurfa að vinna í og laga. Keflavík lagði grunnin að sigrinum með pressu og góðri vörn. Allt liðið fékk að spila og var sama hver kom inn á, allar einbeittar og klárar í verkefnið.
Liðin sem eru komin áfram í 4 liða úrslit eru:
Keflavík, Njarðvík, KR og annað hvort Grindavík eða Hrunamenn en þeir leika í kvöld fimmtudag um sæti í 4 l... Meira
|
|
Karfa: Konur | 12.01.2012
Hamarsstúlkur kláraðar í 4. leikhluta
Keflavíkurstúlkur skelltu sér í gærkvöldi í Hveragerði, eftir afleitt veður undanfarna daga var loks hægt að komast á áfangastað. Svo fór að Keflavíkurstúlkur lönduðu góðum sigri 61-79. Fréttaritari Keflavíkur var fjarri góðu gamni í gærkvöldi og nýtir þar af leiðandi góða umfjöllun karfan.is af leiknum:
Hamar tók á móti efsta liðinu, Keflavík, í Iceland Expreess deild kvenna í kvöld þar sem heimakonur voru lengi í gang. Keflavík komst í 4-16 en eitthvað lagaðist leikur Hamars sem var búinn að jafna stöðuna rétt fyrir hálfleik 30-30 og ekki mikið skorað.
Samantha Myrphy var ekki að setja neitt af 3ja stiga skotum sínum fyrir Hamar og Keflvíkingum var nánast fyrirmunað að skora á vítalínun... Meira
|
|
Karfa: Yngri flokkar | 11.01.2012
Sigur hjá 9. flokki drengja í bikar
9. flokkur drengja lék í kvöld í 8 liða úrslitum bikarkeppni KKÍ gegn liði Breiðabliks. Leikurinn fór fram hér heima og stjórnaði Guðmundur Skúlason liðinu í fjarveru þjálfara drengjanna. Leikurinn fór frekar hægt af stað og gekk báðum liðum illa að skora. Í lok fyrstu lotu tóku okkar drengir smá rispu og leiddu 17-6. Annar leikhlutinn var nokkuð jafn og stóðu leikar í hálfleik 29-17. Í seinn hálfleik náðu okkar drengir betri stjórn á leiknum og lauk leik með sigri okkar drengja 64-34 þar sem allir leikmenn okkar komu við sögu.
Liðið í kvöld var skipað eftirfarandi piltum: (skoruð stig)
Sindri Ólafsson (13), Guðmundur Ólafsson (10), Sigurþór I. Sigurþórsson (26), Árni V. Karlsson, Tryggv... Meira
|
|
Knattspyrna | 10.01.2012
Dómaranámskeið 16. janúar
Knattspyrnudómaranámskeið verður haldið mánudaginn 16. janúar kl. 17:30 í félagsaðstöðu Keflavíkur við Sunnubraut. Við hvetjum alla sem hafa áhuga á að kynnast dómgæslu til að mæta.... Meira
|
|
Karfa: Hitt og Þetta | 10.01.2012
Keflavík mætir UMFN í 8 liða úrslitum Powerade
Dregið var í dag í 8 liða úrslit í Poweradebikarnum og óhætt er að segja að stórleikur verði í Reykjanesbæ í kvennaflokki þegar Keflavík mætir liði Njarðvíkur í Ljónagryfjunni. Það gengur erfiðlega að draga heimaleik fyrir Keflavíkurliðin úr hattinum því strákarnir lenda líka í útileik, þeim þriðja í röð, þegar þeir fara í Grafarvoginn og mæta liði Fjölnis.
Eftirfarandi lið drógust saman í 8 liða úrslitunum, en leikið verður dagana 21. - 23. janúar;
Poweradebikarkeppni kvenna
Njarðvík – Keflavík
Fjölnir – Snæfell
Haukar – Hamar
Stjarnan – Grindavík
Poweradebikarkeppni karla
KFÍ – Hamar
Fjölnir – Keflavík
Tindastóll – Njarðvík
KR – Snæfell... Meira
|
|
Karfa: Yngri flokkar | 10.01.2012
Morgunæfingarnar hefjast aftur á fimmtudaginn
Morgunæfingar hefjast á nýjan leik n.k. fimmtudagsmorgun en æfingarnar verða í boði tvisar í viku frá kl. 6.40 - 7.30. Æfingarnar eru öllum opnar í 8. bekk og eldri og og það kostar ekki neitt nema gott hugarfar að láta sjá sig. Allir áhugasamir iðkendur sem vilja leggja aukalega á sig eru hvattir til að nýta gott tækifæri til að hámarka sinn árangur en þessar æfingar hafa fallið í góðan jarðveg og verið vel sóttar.
Morgunæfingarnar fara fram á;
Þriðjudögum kl. 06.40-07.30
Fimmtudögum kl. 06.40- 07.30
Allir velkomnir
Barna- og unglingaráð KKDK... Meira
|
|
Badminton | 09.01.2012
Æfingar
Þá er jólafríð búið og æfingarnar farnar á stað hjá deildinni. Æfingarnar eru í íþróttahúsinu við Sunnubraut og í Akurskóla.
Mánudagur hópur 1. kl - 15:30 - 16:30 Íþróttahúsið við Sunnubraut
Miðvikudagur hópur 1. kl - 15:30 - 16:30 Íþróttahúsið við Sunnubraut
Fimmtudagur hópur 2. kl - 18:00 - 19:30 Akurskóla.
Eru allir velkomnir að koma á eina til tvær æfingar og prufa. Eina sem þarf að koma með er íþróttaföt og (innistrigaskó)... Meira
|
|
Karfa: Karlar | 08.01.2012
Keflvíkingar komnir í 8-liða úrslit Powerade bikarkeppninnar
Keflvíkingar tryggðu sér sæti í 8-liða úrslitum Poweradebikar karla, en þeir fóru í ferðalag í Borgarnes í dag þar sem þeir mættu Skallagrímsmönnum. Lokatölur leiksins voru 74-88.
Skallagrímur var hugsanlega sýnd veiði, en alls ekki gefin. Því komust Keflvíkingar að snemma í leiknum, þar sem ekki var gefinn þumlungur eftir í baráttunni. Skallagrímur sýndi hörkuleik og áttu Keflvíkingar í mestu basli við að hrista þá af sér. Staðan í hálfleik var 40-41 og eflaust kom Sigurður Ingimundarson með öfluga hálfleiks-ræðu inni í búningsklefa. Keflvíkingar sýndu klærnar í 3. leikhluta og náðu að setja 20 stig gegn einungis 8 hjá Skallagrím. 4. leikhluti var með svipuðu sniði og voru Keflvíkingar þ... Meira
|
|
Sund | 06.01.2012
Fjáröflun fyrir sundmenn í Framtíðarhópi og Afrekshópi
Flöskusöfnun: Laugardaginn 07.01.12 kl 12.30 mæting að Suðurgarði 22. Foreldrar verða að mæta með börnunum þar sem það þarf að keyra þau á milli húsa.
Flatkökusala: Við ætlum að selja flatkökur og afhenda þær fyrir Þorra. Þannig að við þurfum að fá pantanir til okkar 13.01.12. flatkökurnar eru eins og áður 10 stk og 1000 kr pakkinn og þær eru úr Vogunum.... Meira
|
|
Karfa: Yngri flokkar | 06.01.2012
Bikarkeppni yngri flokka - 8 liða úrslit
Leikið verður í bikarkeppni yngri flokka fyrri hluta janúar en framundan eru 8-liða úrslit auk þess sem leikin verða 16 liða úrslit í drengjaflokki.
Úrslitahelgin verður svo haldin síðustu helgina í febrúar sem er helgin á undan Nettómótinu sem fer fram 3.-4. mars.
Liðin sem drógust saman eru:
Unglingaflokkur kvenna - 8 liða úrslit - leikið 5.-15. jan
KR - Keflavík
Unglingaflokkur karla - 8 liða úrslit
Lau. 7. jan. kl. 16.00 - KR - Keflavík í DHL höllinni
Stúlknaflokkur - 8 liða úrslit - leikið 5.-15. jan
Valur - Keflavík
Drengjaflokkur – 16 liða úrslit - leikið 5.-15. jan
Hamar/Þór Þor. - Keflavík
11. flokkur drengja
Keflavík féll úr leik í 16 liða úrslitum geg... Meira
|
|
Karfa: Konur | 06.01.2012
Góður heimasigur á Fjölnisstúlkum
Keflavíkurstúlkur byrjuðu leik sinn á ný í Iceland Express deild kvenna í gærkvöldi þegar Fjölnisstúlkur mættu í heimsókn. Keflavík átti harm að hefna frá fyrri umferð, þar sem Fjölnisstúlkur fóru óvænt með sigur af hólmi. Annað var þó uppi á teningnum í gær og unnu Keflavíkurstúlkur góðan sigur 82-69.
Rannveig Randversdóttir, fyrrverandi leikmaður Keflavíkurliðsins, var með góða úttekt fyrir karfan.is og verður hún látin fylgja með:
Keflavíkurstúlkur nældu sér í tvö stig gegn Fjölni í kvöld og halda þar með fast í toppsæti Iceland Express deildarinnar. Leikurinn var nokkuð jafn framan af en í fjórða leikhluta stakk Keflavík af og sigraði 82 – 69. Stigahæst í liði Keflavíkur var Jaleesa B... Meira
|
|
Karfa: Konur | 04.01.2012
Úrvalslið Iceland Express-deildar kvenna: Fyrri hluti 2011-2012
Fyrri hluti Iceland Express deildar kvenna var gerður upp fyrr í gær.
Úrvalslið Iceland Express-deildar kvenna
1. Pálína Gunnlaugsdóttir - Keflavík
2. Hildur Sigurðardóttir - Snæfell
3. Petrúnella Skúladóttir - Njarðvík
4. Sigrún Sjöfn Ámundadóttir - KR
5. Jaleesa Butler - Hamar
Besti þjálfarinn:
Sverrir Þór Sverrisson - Njarðvík
Dugnaðarforkur:
Íris Sverrisdóttir - Haukar
Besti leikmaður:
Jaleesa Butler - Keflavík
... Meira
|
|
Knattspyrna | 03.01.2012
Marko ekki með Keflavík
Ekki verður af því að Keflavík semji við Marko Pavlol sem var til reynslu hjá okkur. Marko æfði með Keflavík fyrir jól og lék m.a. með liðinu í æfingaleikjum. Hann var í herbúðum Breiðabliks síðasta sumar og lék þá einn leik í Pepsi-deildinni en Marko gengur sem sagt ekki til liðs við Keflavík að þessu sinni.... Meira
|
|
Sund | 03.01.2012
Nýr Ofurhugi
Síðasti Ofurhugi ársins er kominn út. Smellið á myndina til að lesa.... Meira
|
|
Knattspyrna | 02.01.2012
Hafsteinn sæmdur riddarakrossi
Forseti Íslands sæmdi í gær ellefu Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu. Meðal þeirra var Hafsteinn Guðmundsson sem oft hefur verið nefndur faðir knattspyrnunnar í Keflavík. Hann hlaut riddarakross fyrir forystu á vettvangi íþróttastarfs á Suðurnesjum og á landsvísu.
Hafsteinn Guðmundsson lék fjóra landsleiki í knattspyrnu á árunum 1946-1951, var stjórnarmaður í KSÍ 1968-1971, landsliðsnefndarmaður og síðar landsliðseinvaldur eins og það var kallað og formaður ÍBK til fjölda ára. Hafsteinn var sæmdur heiðurskrossi KSÍ á 50 ára afmæli sínu í október 1973 en heiðurskrossinn er æðsta heiðursmerki KSÍ og veitist aðeins þeim sem unnið hafa knattspyrnuíþróttinni ómetanlegt gagn.
... Meira
|
|
Karfa: Konur | 02.01.2012
Pálína íþróttamaður Reykjanesbæjar 2011
Pálína María Gunnlaugsdóttir var á gamlársdag valin íþróttamaður ársins í Reykjanesbæ, en þar með bætir hún enn einni rósinni í hnappagat sitt. Athöfnin fór fram í íþróttamiðstöð Njarðvíkur.
Pálína gekk til liðs við Keflavík árið 2007 og hefur verið einn af máttarstólpum liðsins síðan. Hún varð Íslandsmeistari með Keflavík tímabilið 2007-2008, bikarmeistari tímabilið 2010-2011 og Íslandsmeistari tímabilið 2010-2011. Pálína var á lokahófi Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur fyrir tímabilið 2010-2011 valin besti varnarmaðurinn, besti leikmaðurinn og í Úrvalslið Keflavíkur 2010-2011. Á lokahófi KKÍ var Pálína valin besti leikmaðurinn í úrslitakeppni kvenna, ásamt því að vera valin í Úrvalslið K... Meira
|
|
Skotdeild | 01.01.2012
Úrslit áramótamóts Skotdeildarinnar
Áramótamót skotdeildar Keflvíkur í Skeet var haldið í gær gamlársdag og var þáttakan góð miðað við veður og aðstæður á vellinum. 6 keppendur skráður sig til leiks og skotnar voru 50 dúfur. Í 1. sæti var Guðmundur Óskarson með 35 dúfur, í 2. sæti var Bjarni Sigurðsson með 34 dúfur og í 3. sæti var Þröstur Sigmundsson með 23 dúfur. Verðlaun voru í boði Knattspyrnundeildar Keflavíkur , og fengu verðlaunahafar veglega flugeldapakka sem K-ið er að selja til styrktar Knattspyrnunnar.
Með nýjarskveðju Stjórn Skotdeildar Keflavíkur.... Meira
|
|
Skotdeild | 30.12.2011
Áramótamót Skotdeildar Keflvaíkur
Hið árlega áramótamót Skotdeildar Keflavíkur í Skeet verður haldið eins og vanalega kl 12:00 á Gamlársdag, þar sem félagsmenn skjóta 2 hringi á Skeet vellinum og keppa um veglega flugeldapakka sem Knattspyrnudeildin styrkir okkur um eins og vanalega. Mótið hefst kl 12:00 og gott er að vera kominn að minnsta kosti 11:40 upp á svæði til að græja sig. Veðurspáin er eitthvað að draga úr vindspánni en það lítur út fyrir að það eigi eftir að rigna á okkur. Gleðilegt ár og þökkum fyrir árið sem er að líða.
Kv Stjórn Skotdeildar Keflavíkur... Meira
|
|
Knattspyrna | 30.12.2011
Haraldur Freyr til Keflavíkur
Haraldur Freyr Guðmundsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Keflavík og verður því hjá félaginu til ársloka 2013. Haraldur gekk til liðs við Start í Noregi síðasta sumar en hefur nú snúið aftur til Keflavíkur.
Haraldur Freyr er þrítugur og lék fyrst með meistaraflokki Keflavíkur árið 1999. Hann lék með Ålesund í Noregi og Apollon Limassol á Kýpur á árunum 2005-2009 en kom aftur til Keflavíkur árið 2009. Haraldur var fyrirliði liðsins síðasta sumar en fór síðan til Start í ágúst. Hann hefur leikið 106 deildarleiki fyrir Keflavík (8 mörk), 19 bikarleiki (4 mörk) og 48 leiki í deildarbikarnum (2 mörk) og var valinn leikmaður ársins hjá Keflavík árið 2010. Haraldur hefur leikið... Meira
|
|
Fimleikar | 30.12.2011
Fimleika maður ársins og norðurlandameistari
Heiðrún Rós er ein af fremstu fimleikastúlkum landsins. Hún er 26 ára og enn í ótrúlegri framför. Hún hefur frá 5 ára aldri æft hjá Fimleikadeild Keflavíkur, fyrst í áhaldafimleikum og síðar í hópfimleikum. Hún hefur alla tíð verið gríðarlega mikilvægur hlekkur í starfi deildarinnar, bæði sem iðkandi og sem þjálfari. Í janúar sl. fór hún í danskan fimleikaskóla, Ollerup. Hún keppti fyrir hönd skólans með Mix liðinu, þar sem konur og karlar keppa saman í liði. Liðið varð Danmörku meistari í maí en með sigrinum öðlaðist skólinn þátttökurétt á Norðurlandamótinu í hópfimleikum sem fór fram 12. nóvember síðastliðinn. Heiðrún lagði mikið á sig til að festa sig í sessi í liðinu, æfði m.a. með Gerp... Meira
|
|
Sund | 29.12.2011
Tilfærsla á milli hópa - Greiðsluseðlar
Nú um áramótin gerðum við okkar fyrstu tilfærslur á milli hópa. Eins og gefur að skilja þá eru æfingargjöldin mismunandi á milli hópa hjá öllum hópum nema Silungum og Löxum. Þeir sem voru að færast á milli hópa fá því einn greiðsluseðil sendan heim með þessum mismuni en upphæð mánaðargreiðslna á kreditkortum eða á greiðsluseðlum verður áfram sú sama. Gjalddagi þessara greiðsluseðla er 16. janúar og eindagi er 1. febrúar. Allir foreldrar sem eiga börn sem eru að færast upp eiga að vera búnir að fá upplýsingar um það hjá þjálfara og einnig verða nöfnin birt í næsta Ofurhuga.
Vinsamlega bregðist vel við og greiðið greiðsluseðla á réttum tíma.
Áramótakveðja
Gjaldkerar... Meira
|
|
Aðalstjórn | 29.12.2011
Íþróttamenn deilda Keflavíkur 2011
Íþróttamenn deilda Keflavíkur 2011
Frá vinstri Aðalsteinn Jónatansson tók við fyrir Davíð H. Aðalsteinsson (sund), Jens Magnússon (skot),
Ísabella Kjartansdóttir (badminton), Jón S. Brynjarsson (taekwondo), Pálína M. Gunnlaugsdóttir (Körfu),
Ómar Jóhannsson (knattspyrnu), Heiðrún R. Þórðardóttir (fimleikum) og Einar Haraldsson formaður Keflavíkur
Knattspyrnumaður: Ómar Jóhannsson
Körfuknattleiksmaður: Pálína María Gunnlaugsdóttir
Fimleikamaður: Heiðrún Rós Þórðardóttir
Sundmaður: Davíð Hildiberg Aðalsteinsson
Badmintonmaður: Ísabella Kjartansdóttir
Skotmaður: Jens Magnússon
Taekwondomaður: Jón Steinar Brynjarsson... Meira
|
|
Aðalstjórn | 29.12.2011
Pálína María Gunnlaugsdóttir íþróttamaður Keflavíkur 2011
Pálína María Gunnlaugsdóttir
íþróttamaður Keflavíkur 2011
Afrek Pálínu:
Pálína er Íslands og bikarmeistari 2011 með liði Keflavíkur.
Pálína var valin í 5 manna úrvalslið Icelandexpressdeildar kvenna fyrir síðasta tímabil.
Var valin besti leikmaður Íslands og bikarmeistara kvenna.
Var í úrvalsliði Keflavíkur, ein af 5 bestu leikmönnum bæði karla og kvennaliðs Keflavíkur.
Pálína hefur verið mjög dugleg að koma að öllu sem félagið hefur beðið hana um.
Valin í landsliðshóp sem kemur saman nú á milli jóla og nýárs.
• Pálína er fyrirmynd annarra íþróttamanna, einstaklega ósérhlífin, dugleg og drífandi sem smitast yfir í aðra leikmenn.
• Spyr alltaf fyrst hvað hún geti ge... Meira
|
|
Sund | 28.12.2011
Davíð Hildiberg sundmaður Keflavíkur 2011
Davíð Hildiberg Aðalsteinsson var í kvöld útnefndur sundmaður Keflavíkur 2011.
Davíð Hildiberg hefur átt frábært ár. Hann æfir núna í Arizona í Bandaríkjunum og stundar nám við háskóla þar.
Hæstu FINA stigin sín hlaut hann fyrir 100m baksund í 50m laug á Íslandsmeistaramóti í apríl. Hann fékk 736 stig fyrir þá grein, þar sem 1000 stig eru heimsmetið. Hann fékk einnig yfir 700 FINA stig í bæði 50m og 200m baksundi og í því síðarnefnda setti hann nýtt ÍRB met í karlaflokki. Hæstu stigum í 25m laug náði hann á metamóti ÍRB en þar fékk hann 668 stig fyrir 100m baksund.
Davíð var hluti af landsliði Íslands sem fór á Smáþjóðaleikana.
Davíð vann silfur í 100m baksundi á Smáþjóðaleikunum ... Meira
|
|
Karfa: Konur | 28.12.2011
Pálína íþróttamaður Keflavíkur 2011
Pálína María Gunnlaugsdóttir var í kvöld valin íþróttamaður Keflavíkur árið 2011. Valið var tilkynnt í félagsheimili Keflavíkur í kvöld.
Pálína gekk til liðs við Keflavík árið 2007 og hefur verið einn af máttarstólpum liðsins síðan. Hún varð Íslandsmeistari með Keflavík tímabilið 2007-2008, bikarmeistari tímabilið 2010-2011 og Íslandsmeistari tímabilið 2010-2011. Pálína var á lokahófi Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur fyrir tímabilið 2010-2011 valin besti varnarmaðurinn, besti leikmaðurinn og í Úrvalslið Keflavíkur 2010-2011. Á lokahófi KKÍ var Pálína valin besti leikmaðurinn í úrslitakeppni kvenna, ásamt því að vera valin í Úrvalslið KKÍ.
Pálína hefur sýnt það hjá Keflavík að hún er í f... Meira
|
|
Aðalstjórn | 28.12.2011
Íþróttamaður- og menn Keflavíkur 2011
Íþróttamaður- og menn Keflavíkur 2011 verða útnefndir í hófi, í félagsheimili Keflavíkur að Sunnubraut 34 í kvöld þann 28. desember 2011 kl. 20:00.
Þeir aðilar sem deildir hafa tilnefnt sem sinn fulltrúa eiga að mæta og úr þeim hópi verður valinn íþróttamaður Keflavíkur 2011. Fær sá veglegan eignarbikar og myndarlegan farandbikar sem Samkaup gefur.
Hófið er opið öllum
Hörður Axel Vilhjálmsson körfuknattleiksmaður er íþróttamaður Keflavíkur 2010 hver verður útnefndur fyrir 2011 ??????????
f.h. Aðalstjórnar Keflavíkur
Einar Haraldsson formaður... Meira
|
|
Knattspyrna | 28.12.2011
Flugeldasala Knattspyrnudeildar á Iðavöllum
Flugeldasala Knattspyrnudeildar Keflavíkur opnar í dag, miðvikudaginn 28. desember, og í tilefni dagsins verður 20% opnunarafsláttur af öllum vörum. Flugeldasalan er á Iðavöllum 7 og að þessu sinni er boðið upp á mikið af nýjum vörum en í ár flytur deildin í fyrsta sinn alla flugelda inn sjálf. Opið verður kl. 10:00-22:00 og kl. 10:00-16:00 á gamlársdag. Það er svo að sjálfsögðu mikið úrvalsfólk sem sér um afgreiðslu og ráðleggur viðskiptavinum um kaup á réttu græjunum.
Það þarf ekki að taka fram að flugeldasalan er mikilvægur liður í fjáröflun Knattspyrnudeildar og hefur verið það undanfarin 25 ár. Við vonumst til að sjá sem flesta þar og treystum á íbúa Reykjanesbæjar að styðja vel v... Meira
|
|
Knattspyrna | 27.12.2011
Ómar tilnefndur
Ómar Jóhannsson er fulltrúi Knattspyrnudeildar í kjöri íþróttamanns Keflavíkur fyrir árið 2011. Kjörið verður kynnt miðvikudaginn 28. desember í félagsheimili Keflavíkur við Sunnubraut. Ómar var valinn leikmaður ársins hjá meistaraflokki karla en hann lék alla leiki liðsins á keppnistímabilinu og átti frábært sumar.
Ómar er þrítugur að aldri og lék fyrst með meistaraflokki Keflavíkur árið 2002. Hann á að baki 143 deildarleiki, 17 bikarleiki, 9 Evrópuleiki og 55 leiki í deildarbikarnum með Keflavík og varð bikarmeistari með liðinu árið 2006. Ómar lék með öllum yngri landsliðum Íslands, 17 leiki með U17 ára liðinu, 6 leiki í U-19 ára og eina 19 leiki með U-21 árs liðinu. Honum tókst á s... Meira
|
|
Knattspyrna | 24.12.2011
Gleðileg jól!
Knattspyrnudeild Keflavíkur sendir öllum iðkendum, styrktaraðilum og stuðningsmönnum óskir um gleðileg jól og farsæld á komandi ári. Sendum einnig öðrum deildum félagsins jólakveðjur með ósk um gott samstarf á komandi ári sem hingað til.
GLEÐILEG JÓL... Meira
|
|
Taekwondo | 24.12.2011
Árið 2011 Taekwondo Keflavík
Árið 2011 hefur verið viðburðaríkt fyrir taekwondodeild Keflavíkur.
Varmá Open
Í febrúar var haldið barnamótið Varmá Open þar sem um 200 börn úr flestum félögum landsis tóku þátt. Keflvíkingar mættu með 24 keppendur og unnu til 33 verðlauna í tveimur greinum. Keflavík var með flest stig félaga og var því félag mótsins. Auk þess var Ástrós Brynjarsdóttir úr Keflavík stigahæsti keppandinn á mótinu í samanlögðum árangri.
Íslandsmót í bardaga
Í mars var haldið íslandsmótið í bardaga. Keflvíkingar höfðu unnið þetta mót árið 2010 og höfðu því titil að verja sem og margir einstaklingar í sínum flokkum. Keflvíkingar unnu til 32 verðlauna og vörðu titilinn sinn frá því árið áður með miklum yfi... Meira
|
|
Aðalstjórn | 23.12.2011
Gleðileg Jól
... Meira
|
|
Knattspyrna | 23.12.2011
Fjör hjá yngstu börnunum í 8. flokki Keflavíkur
Í vetur hafa verið starfræktar æfingar fyrir allra yngstu iðkendurnar, 3-5 ára, á vegum knattspyrnudeildar Keflavíkur. Boðið var upp á tvær æfingar í viku, annars vegar í íþróttahúsinu við Sunnubraut þar sem æfingar voru meira í anda íþróttaskóla með áherslu á knattspyrnu og hins vegar í Reykjaneshöll þar sem knattspyrnan var í hávegum höfð. Æfingatímabilinu lauk nú í desember og voru myndirnar hér að neðan teknar á síðustu æfingum tímabilsins. Sú hefð hefur skapast s.l. 10 ár að iðkendur fái merktan Keflavíkurbol á lokaæfingu ársins merktan SPKEF. Í ár voru það bílaleigan Geysir, Merkiprent og Sportmenn sem voru styrktaraðilar og er þeim þakkað sérstaklega fyrir stuðninginn sem svo san... Meira
|
|
Sund | 22.12.2011
Æfingarferð til Danmerkur í sumar - Lokafrestur til að skrá
Lokadagur til að skrá sig í æfingarferðina til Danmerkur í sumar er á morgun, Þorláksmessu. Allar upplýsingar hafa verið sendar í tölvupósti á foreldra í Framtíðar- og Afrekshópi. Ferðin er fyrir sundmenn fædda 2001 og fyrr. Endilega láitð vita ef pósturinn hefur ekki borist ykkur. Það þurfa allir að skrá sig á skráningarsíðunni sem er í tölvupóstinum. Líka þeir sem hafa látið Edda vita. Eingöngu verða tekin frá sæti fyrir þá sem skrá sig fyrir 24. desember.... Meira
|
|
Knattspyrna | 22.12.2011
Snorri Már þjálfar kvennaliðið
Snorri Már Jónsson hefur tekið við þjálfun kvennaliðs Keflavíkur en hann mun einnig þjálfa 2. flokk kvenna. Snorri er fæddur og uppalinn í Keflavík og lék með öllum yngri flokkum okkar. Hann lék um 50 leiki með meistaraflokki Keflavíkur og yfir hundrað leiki með meistaraflokki Njarðvíkur. Snorri Már hefur menntað sig í þjálfun undanfarin ár og þjálfað hjá yngri flokkum Njarðvíkur og nú síðast Reyni Sandgerði í 2.deildinni síðastliðið sumar. Þannig að hann hefur reynslu bæði innan sem utan vallar.
Snorri hóf störf snemma í haust þó hann ekki skrifað formlega undir fyrr en nú í desember. Æfingasókn hefur verið mjög góð eða um 30 stúlkur á hverri æfingu og ávallt gaman og nóg að geras... Meira
|
|
Knattspyrna | 21.12.2011
Jólafrí í boltanum
Keflavík lauk stuttri æfingaleikjahrinu gegn ÍBV í Reykjaneshöllinni á laugardaginn. Eyjamenn sigruðu 3-1 en Theodór Guðni Halldórsson skoraði mark Keflavíkur. Strákarnir eru nú komnir í jólafrí en hefja æfingar að nýju strax eftir áramót. Þá styttist í fótbolta.net-mótið sem hefst með leik gegn Blikum þann 14. janúar í Reykjaneshöllinni.
Meistaraflokkur kvenna lýkur árinu með léttu æfingamóti þann 21. desember en stelpurnar byrja svo aftur að æfa strax 2. janúar. Þær hefja svo leik í Faxaflóamótinu þann 8. janúar og leika þá gegn Álftanesi í Reykjaneshöllinni.
Gert er hlé á æfingum yngri flokka á meðan jólafrí er í skólum en eldri flokkarnir hefja svo flestir leik í Faxaflóamótunum u... Meira
|
|
Karfa: Karlar | 21.12.2011
Strákarnir verma 3. sætið yfir hátíðarnar
Karlalið Keflavíkur spilaði sinn síðasta leik á sunnudaginn fyrir jólafrí, en drengirnir skelltu sér í ferðalag í Garðabæinn og mættu þar Stjörnumönnum. Það var mikið í húfi fyrir þennan leik, enda bæði lið að blanda sér í toppbaráttuna í deildinni. Því miður fór það svo að Stjörnumenn reyndust sterkari aðilinn í leiknum og lönduðu þeir sigri 107-91.
Bæði lið komu mjög spræk til leiks og var eflaust búið að margtyggja það ofan í leikmenn að þetta væri mjög mikilvægur leikur rétt fyrir jólafríið. Mikill hraði einkenndi leikinn og í kjölfarið komu einnig margar villur í hús hjá báðum liðum. Stjörnumenn voru öflugri undir lok leikhlutans, en þeir skoruðu 8 stig gegn tveimur hjá Keflavík og va... Meira
|
|
Fimleikar | 20.12.2011
Jólakveðja
Stjórn og starfsmenn Fimleikadeildar Keflavíkur óskar iðkendum og aðstandendum deildarinnar gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Allar æfingar hefjast svo að nýju ári samkvæmt stundatöflu þann 4.Janúar 2012.
... Meira
|
|
Getraunir | 19.12.2011
Jólafrí í Getraunaleiknum
Getraunaleikur Keflavíkur er nú kominn í jólafrí og verður ekkert keppt næstu tvær helgar. Keppnin byrjar aftur laugardaginn 7. janúar. Leikurinn hefur gengið vel það sem af er vetri en einir 42 hópar taka þátt. Hér má sjá stöðuna í leiknum.... Meira
|
|
Sund | 19.12.2011
Sundæfingar um jólin hjá Framtíðarhópi
Mánudagur 19. des. kl. 16:15 – 18:00
Þriðjudagur 20. des. kl. 17:45 – 20:15 (morgunæfing mæting 05:15)
Miðvikudagur 21. des. kl. 09:00 – 11:00
Fimmtudagur 22. des. kl. 14:00 – 16:00 (morgunæfing mæting 05:15)
Föstudagur 23. des. kl. 09:00 – 11:00(pakkajól frá 11:00 – 11:30) pakkinn má kosta 600 – 700 krónur
24. – 26. des. frí
Þriðjudagur 27. des. kl. 14:00 - 16:00 (morgunæfing mæting 05:30)
Miðvikudagur 28. des. kl. 09:00 – 11:00
Fimmtudagur 29. des. kl. 14:00 – 16:00 (morgunæfing mæting 05:30)
Föstudagur 30. des. kl. 09:00 – 11:00
Laugardagur 31. des. kl. 08:00 – 10:00 (Teningar!!!!)
1. jan. frí
Mánudagur 2. jan. kl... Meira
|
|
Sund | 18.12.2011
Jólafrí Sprettfiska og Flugfiska í Heiðarskóla
Sprettfiskar eru komnir í jólafrí og byrja aftur 6.janúar :-)
Flugfiskar koma á sína síðustu æfingu 19. des og byrja svo aftur eftir áramót 6. des.
Jólakveðja
Marín... Meira
|
|
Karfa: Konur | 18.12.2011
Keflavíkurstúlkur á toppnum yfir jólin
Keflavíkurstúlkur lönduðu góðum sigri í gær þegar þær mættu KR-stúlkum, en leikið var í Toyota Höllinni. Svo fór að Keflavík fór með sigur af hólmi í stigalitlum leik, en lokatölur leiksins voru 55-54 fyrir Keflavík.
Leikurinn var mjög sveiflukenndur og bæði lið skiptust reglulega á forystunni í leiknum. Staðan í hálfleik var 26-25 fyrir Keflavík. Lokamínútur leiksins voru æsispennandi og minnkuðu KR-stúlkur stöðuna í eitt stig þegar um hálf mínúta var eftir. Eftir misheppnaða sókn hjá Keflavík, fengu þær tækifæri til að jafna leikinn en skot Ericu Prosser var langt frá körfunni og virkaði í raun sem sending.
Með sigrinum tókst Keflavíkurstúlkum að tryggja sér toppsæti deildarinnar yfir j... Meira
|
|
Sund | 17.12.2011
Jólafrí hjá hópum Sóleyjar
Gullfiskar, Silungar, Laxar Heiðarskóla komnir í jólafrí og byrja aftur 9. janúar 2012
Silungar/Laxar Njarðvíkursundlaug komnir í jólafrí og byrja aftur 10. janúar 2012
Sverðfiskar fara í jólafrí 20. desember og byrja aftur fimmtudaginn 5. janúar... Meira
|
|
Karfa: Hitt og Þetta | 16.12.2011
Stjörnuleikur KKÍ
Nú er hafin kosningin í byrjunarliðin tvö í Stjörnuleik karla 2012. Leikurinn fer fram laugardaginn 14. janúar og verður úrvalsdeildarliðunum skipt í tvennt, lið frá höfuðborgarsvæðinu skipa lið „Borgarinnar" og liðin af landsbyggðinni og Reykjanesinu lið „Landsins".
Hægt er að velja alla leikmenn liðanna en velja verður tvo bakverði, tvo framherja og einn miðherja í hvort lið og ekki má velja fleiri en tvo erlenda leikmenn í hvort byrjunarlið.
-> Smelltu hér til að kjósa <-
(Athugið að hver einstaklingur má skila inn einni kosningu)
Þjálfarar liðanna munu svo velja hina 7 leikmenn hvors liðs en þeir tveir þjálfarar sem verða á toppnum í deildinni eftir sunnudaginn kemur fá þan... Meira
|
|
Sund | 16.12.2011
Jólafrí Sprettfiska og Flugfiska í Njarðvíkurlaug og Háhyrninga í Vatnaveröld
Sprettfiskar 19. des - 04. jan. síðasta æfing 15. des. Fyrsta æfing á nýju ári þann 5. jan.
Flugfiskar 22. des - 05. jan. síðasta æfing 21. des. Fyrsta æfing á nýju ári þann 6. jan.
Háhyrningar 22. des - 03. jan. síðasta æfing 21. des. Fyrsta æfing á nýju ári þann 4. jan.
Gleðileg jól !
Kv. Steindór... Meira
|
|
Sund | 16.12.2011
Jólafrí hjá Gullfiskum, Silungum og Löxum í Akurskóla
Gullfiskar, Silungar og Laxar eru komnir í jólafrí. Æfingar hefjast aftur 9. janúar.
Gleðileg jól.
Kv. Helga... Meira
|
|
Sund | 16.12.2011
Æfingar um jólin hjá Afrekshópi
Fyrir og eftir þessar dagsetningar gildir æfingartaflan.
Fimmtudagurinn 22. desember 15:00-17:00
Þriðjudagurinn 27. desember 5:45-7:45 og 16:00-18:00
Miðvikudagurinn 28. desember 5:45-7:45 og 16:00-18:00
Fimmtudagurinn 29. desember 5:45-7:45 og 16:00-18:00
Þriðjudaginn 3. janúar 5:45-7:45 (morgunæfing)
Góða skemmtun
Ant ... Meira
|
|
Fimleikar | 16.12.2011
Krakkafimleikar
Opið er fyrir skráningu á 5.vikna námskeið í krakkafimleikum. Námskeiðið er á laugardögum fyrir börn fædd 2007-2009. Skráning fer fram á greiðsluvef okkar til hliðar á heimasíðu deildarinnar.... Meira
|
|
Sund | 15.12.2011
Jólafrí hjá Sprettfiskum, Flugfiskum og Sverðfiskum í Akurskóla
Flugfiskar Akurskóla byrja í jólafríi mánudaginn 19. desember.
Sprettfiskar og Sverðfiskar Akurskóla byrja í jólafríi þriðjudaginn 20. desember
Æfingar hefjast aftur 4. janúar hjá Flugfiskum og 5. janúar hjá Sprettfiskum og Sverðfiskum samkvæmt stundaskrá æfingatöflu.
Jólakveðja
Hjördís Ólafsdóttir, þjálfari... Meira
|
|
Knattspyrna | 15.12.2011
Sigur á Þrótti í æfingaleik
Keflavík sigraði Þrótt Reykjavík í Reykjaneshöllinni í gærkvöldi 1-0 með glæsilegu marki frá Sigurbergi Elíssyni um miðjan seinni hálfleikinn. Keflavík var mun sterkara liðið og átti nokkur góð færi sem ekki nýttust. Marko Pavlov spilaði með Keflvíkingum í leiknum. Þróttarar eru með ungt og sprækt lið og greinilegt verið að gera góða hluti þar á bæ.
Keflavík: Ómar Jóhannsson, Eyþór Einarsson, Ásgrímur Rúnarsson, Frans Elvarsson, Viktor Smári Hafsteinsson, Hilmar Geir Eiðsson, Marko Pavlov, Arnór Ingvi Traustason, Jóhann Birnir Guðmundsson, Magnús Sverrir Þorsteinsson og Guðmundur Steinarsson.
Aðrir sem komu við sögu: Árni Freyr Ásgeirsson, Bojan Stefán Ljubicic, Sigurbergur Elísson,... Meira
|
|
Karfa: Yngri flokkar | 14.12.2011
Þrír í U-15 landslið.
Þrír ungir körfuboltadrengir fengu í dag bréf frá Körfuknattleikssambandi Íslands um að þeir hefðu verið valdir í 25 manna landsliðsúrval drengja 15 ára og yngri.
Drengirnir eru burðarásar 9. flokksins sem nýlega vann sig upp í A-riðil eða á meðal fimm bestu liða landsins í þessum árgangi. Minnsti sigur drengjanna í B-riðlinum var 19 stig og það á móti helsta andstæðingnum sem var lið Þórs í Þorlákshöfn.
Körfuknattleiksdeild Keflavíkur óskar drengjunum til hamingju og óskar þeim velfarnaðar á þeim æfingum sem framundan eru.
Sigurþór Ingi Sigurþórsson Sindri Snær Ólafsson Tryggvi Ólafsson
Áfram Keflavík !... Meira
|
|
Karfa: Yngri flokkar | 14.12.2011
Tap í bikar hjá 10. flokki.
9.flokkur drengja (9.bekkur grunnskólans) lék bíkarleik í kvöld hér í Toyotahöllinni. Leikurinn var í bikarkeppni 10. flokks og voru mótherjarnir Stjörnumenn sem eru eitt af þremur bestu liðum þessa árgangs. Leikurinn var ójafn frá upphafið og endaði 39 - 79 fyrir Stjörnunni. Leikmenn okkar voru óþarflega stressaðir í upphafi leiks og hentu boltanum of oft í hendurnar á andstæðingunum og var staðan eftir um fimm mínútna leik orðin 5-22. Leikurinn jafnaðist aðeins þegar okkar leikmenn slökuðu aðeins á og fóru að leika sinn leik og var staðan í hálfleik 17-40.
Lið okkar var skipað þannnig í þessum leik:
Matthías Stefán Guðnason, Tryggvi Ólafsson, Sindri Ólafsson, Guðmundur Ólafsson, Kristi... Meira
|
|
Fimleikar | 14.12.2011
Jólafrí
Jólafrí verður hjá Fimleikadeild Keflavíkur frá 16.desember til 4.janúar. Mætt verður aftur á nýju ári samkvæmt stundatöflu.
Jólakveðja,
Þjálfarar og stjórn... Meira
|
|
Fimleikar | 14.12.2011
Jólasýning
Jólasýning Fimleikadeildar Keflavíkur var haldin sunnudaginn 11. desember. Eins og undanfarin ár voru sýningarnar tvær og var fullt á báðum. Allir iðkendur stóðu sig með mikilli prýði og voru deildinni sinni til sóma. Tveir jólasveinar mættu á svæðið og vakti það mjög mikla lukku sérstaklega fyrir yngstu kynslóðina.
Við viljum þakka áhorfendum kærlega fyrir komuna á jólasýninguna.
Einnig viljum við taka fram að vikuna 12- 16 desember verða æfingar hjá öllum hópum, eins og venjulega. Svo förum við í jólafrí og byrjum aftur af fullum krafti, miðvikudaginn 4.janúar.
Einhverjar breytingar gætu orðið á æfingatímum hópanna (fer eftir stundatöflum þjálfara), við munum láta ykkur vita af ... Meira
|
|
| |